Rjúpnahæð
Leikskólinn Rjúpnahæð er sex deilda leikskóli staðsettur við Rjúpnasali í Kópavogi. Leikskólinn vinnur eftir aðalnámskrá leikskóla og samkvæmt leikskólastefnu Kamii og DeVries, sem byggist á hugsmíðahyggju. Hugsmíðahyggja er sú hugmynd að tækið sem barnið notar til náms er leikurinn, hann er kjarninn í uppeldi og menntun þess. Litið er á barnið sem virkan aðila að eigin uppbyggingu félagslegrar færni, siðgæðis- og vitsmunaþroska.
Meginmarkmið leikskólans er að stuðla að sjálfræði barnanna með lýðræði að leiðarljósi. Unnið er út frá forsendum barnanna miðað við þroska og getu sem lýsir sér í því að umhverfi barnanna sé skipulagt þannig að það stuðli að því að barnið geti með góðu móti nálgast þann efnivið sem það þarfnast og umhverfið sé hvetjandi, rannsakandi, áhugavert og að það veki hjá þeim hvöt til að rannsaka, kanna og skoða.
Í uppeldisstefnunni varðandi sjálfræði eru fræði Devires og Kamii höfð til hliðsjónar einnig er stuðst við Barnasáttmálann. Í leikskólanum er lögð mikil áhersla þátttöku barnanna í skólasamfélaginu með því að fá þeirra sjónarmið á málefnum sem skipta þau máli. Allar þessar áherslur tengjast með skýrum hætti Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og áherslu á sjálfbærni menntun.
Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara
Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara eða leiðbeinanda.
Við erum sex deilda leikskóli í Salahverfinu, erum í stöðugri þróun og leggjum áherslu á krefjandi og skemmtilegt starf með börnunum.
Hugmyndafræði leikskólans byggir á hugsmíðahyggju og meginmarkmið okkar er sjálfræði með lýðræði að leiðarljósi. Við vinnum með hugtök sem snúa meðal annars að lýðræði, gleði, virðingu, sjálfsbjargarviðleitni, sjálfstæði o.fl.
Starfið felur í sér almenna kennslu í skemmtilegu umhverfi sem er í stöðugri þróun. Faglegur og framúrskarandi starfsmannahópur sem vinnur saman að gera góðan leikskóla enn betri.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í leik og starfi með börnunum sem byggir á frumkvæði og teymisvinnu starfsmanna
- Sinnir þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun sem nýtist í starfi
- Góð íslenskukunnátta
- Ábyrgð, áreiðanleiki og jákvæðni
- Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð vinnubrögð
Fríðindi í starfi
- Frítt í sund í sundlaugum Kópavogsbæjar
- Stytting vinnuvikunnar - er að hluta notuð í lokanir milli jóla- og nýárs, dymbilviku og vetrarfríum.
- Frítt fæði
Advertisement published16. September 2024
Application deadline1. October 2024
Language skills
IcelandicExpert
Location
Rjúpnasalir 3, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
ProactivePositivityHuman relationsIndependencePunctual
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)
Sjálandsskóli óskar eftir dönskukennara á unglingastig
Garðabær
Leikskólasérkennari / þroskaþjálfi í Grænuborg
Leikskólinn Grænaborg
Hjalli í Hafnarfirði auglýsir eftir leikskólakennurum
Hjallastefnan leikskólar ehf.
Umsjónarkennari - afleysing
Seltjarnarnesbær
Umsjónarkennari á yngsta stig
Seltjarnarnesbær
Leikskólastarfsfólk óskast
Helgafellsskóli
Stuðningsfulltrúi í frístundaheimilið- Gulahlíð
Kringlumýri frístundamiðstöð
Sérkennslustjóri - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær
Verkefnastjóri í félagsmiðstöð – Setbergsskóli – félagsmiðstöðin Setrið
Hafnarfjarðarbær
Komdu í lið með skemmtilegu fólki í frístund Landakotsskóla
Landakotsskóli
Viltu hafa áhrif á dýrmæta einstaklinga? Komdu til okkar
Leikskólinn Sjáland
Deildarstjóri í teymisvinnu
Heilsuleikskólinn Kór