Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Leikskólaráðgjafi til skólaþjónustu

Skólaþjónusta Árborgar auglýsir stöðu leikskólaráðgjafa til að ganga til liðs samheldinn og þverfaglegan hóp starfsfólks. Skólaþjónustan er hluti af fjölskyldusviði Árborgar þar sem mikil áhersla er lögð á þverfaglegt samstarf skóla-, velferðar- og frístundaþjónustu.

Skólaþjónustan sinnir margþættum verkefnum með það að leiðarljósi að mæta fjölbreyttum þörfum barna, foreldra og starfsfólks skóla og frístundar. Mikil áhersla er lögð á snemmtækan stuðning, lausnaleit, þróun úrræða, öfluga skólaþróun, fræðslu og námskeið bæði fyrir börn, foreldra og starfsfólk skóla og frístundar.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 12000 íbúar þar af um 2300 börn í leik- og grunnskólum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • ráðgjöf til starfsfólks og stjórnenda leikskóla m.a. varðandi kennslu, hegðun og líðan barna og starfstengda leiðsögn
  • ráðgjöf varðandi starfsþróun og starfshætti í leikskólum
  • eftirfylgd og mat á stuðningsþörf barna eftir greiningar eða skimanir
  • þverfaglegt samstarf um málefni barna í leikskólum
  • fræðsla og námskeið fyrir foreldra og starfsfólk leikskóla
  • daggæslumál, m.a. eftirlit með dagforeldrum, umsjón með niðurgreiðslu daggæslu og fræðsla þegar við á.
  • þátttaka í daggæsluteymi
  • þverfaglegt samstarf á fjölskyldusviði
Menntunar- og hæfniskröfur
  • háskólapróf í leikskólakennarafræðum er skilyrði
  • framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er æskileg
  • reynsla af starfi úr leikskólum er skilyrði
  • reynsla af leikskólaráðgjöf er æskileg
  • reynsla af teymisvinnu og þverfaglegu samstarf er æskileg
  • lipurð og góð færni í mannlegum samskiptum
  • frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og góð skipulagshæfni
  • góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti er skilyrði
Fríðindi í starfi

Sveigjanlegur vinnutími, full vinnustytting, góður starfsandi, handleiðsla

Advertisement published19. March 2026
Application deadline7. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags