Vinagarður leikskóli
Vinagarður leikskóli
Vinagarður leikskóli

Leikskólakennari óskast í frábæran skóla

Við óskum eftir að ráða áhugasaman og drífandi kennara til starfa í leikskólanum Vinagarði sem er sjálfstætt starfandi leikskóli rekinn af KFUM og KFUK á Íslandi. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á börnum og barnæskunni, ánægju af samskiptum við aðra, býr yfir hugmyndaauðgi, ásamt metnaði til að hlúa að skapandi og uppbyggilegu umhverfi fyrir börn í anda stefnu leikskólans.

Við vinnum mikið með náttúruna og útinám, vináttu og tengsl og erum með virkt samstarf við skóla á hinum Norðurlöndunum. Í skólanum er frábær hópur kennara og reyndra leiðbeinenda. Við leysum að hluta til af styttingu vinnuvikunnar og hjá okkur eru færri börn á deildum en í sambærilegum leikskólum.

Starfið er laust frá 1.janúar 2027 og möguleikar eru á deildarstjórastöðu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna að menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun, leyfisbréf til kennslu í leikskóla
  • Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
  • Lipur og árangursrík samskipti og samstarfshæfni
  • Hugmyndaauðgi, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Reglusemi og heiðarleiki
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
  • Launaauki fyrir kennara með leyfisbréf
  • Leikskólinn er lokaður milli jóla og nýárs
  • Máltíðir yfir daginn
Advertisement published16. November 2026
Application deadline9. December 2026
Language skills
ÍslenskaÍslenska
Required
Mjög góð
Location
Holtavegur 28, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.CreativityPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Flexibility
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags