Leikskólinn Árborg, Reykjavík
Leikskólinn Árborg, Reykjavík

Leikskólakennari / leiðbeinandi óskast

Leikskólinn Árborg í Árbæ

Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa í leikskólann Árborg, við erum til húsa í leikskólahluta Selásskóla, 110 Reykjavík. Leikskólinn Árborg er 3ja deilda leikskóli og felst laus staða í vinnu á deild 3-6 ára nemenda.

Málörvun er ein af okkar helstu áherslum og vinnum við leik og starf með sérstaka áherslu á málörvun. Við vinnum meðal annars með Lubbi finnur málbein, Tákn með tali, ýmis fjölbreytt verkefni, listsköpun, dans, tónlist, útikennslu svo fátt eitt sé nefnt. Við leikum okkur úti alla daga.

Einnig leggjum við mikla áherslu á virðingu, fallega framkomu og gott og öflugt foreldrasamstarf.

- Starfið er laust strax eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt stefnu og skipulagi skólans undir stjórn deildarstjóra.
  • Að sinna fjölbreyttum verkefnum er varða kennslu, umönnun og uppeldi nemenda.
  • Foreldrasamstarf, sveigjanleiki og hjálpsemi í starfi er varðar samvinnu á milli deilda.
  • Að sinna ýmsum störfum innan leiksólans sem yfirmaður felur honum. Næsti yfirmaður er deildarstjóri.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun eða önnur menntun og reynsla sem nýtist í starfi
  • Virðing og áhugi fyrir börnum
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Jákvæðni og lausnarmiðað viðhorf
  • Góð færni í samvinnu og samskiptum
  • Reynsla af vinnu með ungum börnum kostur
Fríðindi í starfi
  • Stytting vinnuvikunnar þar sem í leikskólanum Árborg er 38 klst vinnuvika fullt starf.
  • Afsláttur af leikskólagjöldum í Reykjavík
  • Árlegur heilsuræktarstyrkur þegar þú hefur starfað í 6 mánuði
  • Ókeypis í sundlaugar Reykjavíkurborgar með S-kortinu
  • Ókeypis bókasafnskort og frítt á söfn með Menningarkortinu
Advertisement published21. October 2024
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandicVery good
Location
Selásbraut 109, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.Physical fitnessPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags