Leikskólinn Hádegishöfði Fellabæ
Leikskólinn Hádegishöfði Fellabæ
Leikskólinn Hádegishöfði Fellabæ

Leikskólakennari í Hádegishöfða Fellabæ

Hádegishöfði auglýsir lausa til umsóknar 100% stöðu leikskólakennara. Hlutastarf kemur einnig til greina. Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.

Hádegishöfði er þriggja deilda leikskóli sem rekinn er í nýju og glæsilegu húsnæði að Fellabrún 9 í Fellabæ. Á Hádegishöfða er unnið að innleiðingu jákvæðs aga og starfar leikskólinn í anda hugmyndafræði Reggio Emilia. Hádegishöfði er skóli á grænni grein og flaggar grænfána Landverndar.

Næsti yfirmaður er leikskólastjóri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfið felur í sér almenna kennslu
  • Vinnur að uppeldi og menntun barna
  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra 
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra
  • Vinnur  í nánu samstarfi við foreldra/forráðarmenn barnanna
  • Sinnir þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn). Ef ekki fæst kennari verður ráðinn annar starfskraftur með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi tímabundið.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Sveigjanleiki, áreiðanleiki og stundvísi
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð líkamleg heilsa
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
  • Heilsueflingarstyrkur
  • Styttri vinnuvika
  • Tækifæri til starfsþróunar
  • Möguleiki á afslætti af vinnuskyldu fyrir leikskólakennaranema
  • Heitar máltíðir í hádeginu snæddar með börnunum
Advertisement published26. November 2026
Application deadline10. December 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Fellabrún 9
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Meticulousness
Professions
Job Tags