Leikskólinn Hulduberg
Leikskólinn Hulduberg
Leikskólinn Hulduberg

Leikskólakennarar óskast á Hulduberg

VIÐ ERUM AÐ LEITA AÐ LEIKSKÓLAKENNURUM Í LEIKSKÓLASTARF FULLT STARF SEM GETUR HAFIÐ STÖRF 11. ÁGÚST.

Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.

Í Huldubergi eru 102 börn á aldrinum 1 árs til 4ja ára. Sérstakar áherslur í leikskólastarfinu eru: Tilfinningalegt öryggi, umhyggja, umönnun, hlýja, góðvild, festa, sveigjanlegt dagskipulag, streitulaust umhverfi og aldurshæfandi örvun.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fylgist vel með velferð barnanna og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar, gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara með áherslu á leikskólastarf eða aðra sambærilega menntun.
  • Áhugi, menntun, reynsla og hæfni í starfi með ungum börnum.
  • Sjálfstæði og metnaður í vinnubrögðum.
  • Framúrskarandi samskiptafærni.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Advertisement published3. June 2025
Application deadline1. July 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Lækjarhlíð 3, 270 Mosfellsbær
Type of work
Professions
Job Tags