Icelandia
Icelandia
Icelandia

Leiðsögumaður - ATV / Buggy

Við leitum að ástríðufullum leiðsögumanni til að leiða gesti í ATV- og buggyferðum á Sólheimasandi og Mýrdalsjökli. Þetta er tækifæri til að vera hluti af framsækinni ferðaþjónustu á einstakri náttúruperlu, þar sem engar tvær ferðir eru eins. Um er að ræða 100% starf í 7-7 vaktavinnu frá júní til október.

English job description is available by clicking "Sækja um".

Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun — allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiðsögn á ATV og buggy á svæðinu.
  • Undirbúningur ferða og aðstoð með öryggisbúnað.
  • Vinna eftir umhverfis-, öryggis- og gæðastöðlum fyrirtækisins.
  • Önnur tilfallandi verkefni sem falla að eðli starfsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af leiðsögn er æskileg.
  • Gilt B-ökuréttindi eru skilyrði. D-réttindi eru æskileg.
  • Framúrskarandi enskukunnátta í töluðu máli er skilyrði. Frekari tungumálakunnátta er kostur.
  • Reynsla af ATV / Buggy leiðsögn er mikill kostur. 
  • Lipurð í mannlegum samskiptum, jákvæðni og drifkraftur — bæði í þjónustu við gesti og í teymisvinnu.
  • Jákvætt viðhorf til sameiginlegrar umgengni og þátttöku í daglegum verkum á starfsstað.
  • Sveigjanleiki og frumkvæði í vinnubrögðum.
  • Snyrtileg framkoma og stundvísi.
Advertisement published26. May 2026
Application deadline10. June 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Optional
Intermediate
Location
Ytri-Sólheimar 163042, 871 Vík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Driver's license (B)PathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.LeiðsögumaðurPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ÖryggisvitundPathCreated with Sketch.Customer service
Suitable for
Professions
Job Tags