Náttúruverndarstofnun
Náttúruverndarstofnun

Landvörður í Þingeyjarsveit

Náttúruverndarstofnun leitar að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi til starfa á friðlýstum svæðum í Þingeyjarsveit, þ.á.m. á Gíg gestastofu og á norðurhálendi Vatnajökulsþjóðgarðs. Landverðir sinna fjölbreyttum og mikilvægum verkefnum sem stuðla að verndun náttúru, þjónustu og innviðum. Verkefni landvarða fela meðal annars í sér að efla innviði og umhirðu svæða, fylgjast með ástandi umhverfisins og leggja sitt af mörkum til að tryggja að Ísland verði áfram einstakur staður. Landverðir gegna lykilhlutverki í að leiðbeina og fræða gesti um náttúruna og hvetja til ábyrgðar í umgengni við hana.

Í Þingeyjarsveit eru fjölmörg svæði friðlýst, þar á meðal verndarsvæði Mývatns og Laxár, Dimmuborgir, Skútustaðagígar og Goðafoss. Einnig sinna landverðir upplýsingagjöf og fræðslu á Gíg gestastofu á Skútustöðum. Norðurhálendi Vatnajökulsþjóðgarðs nær frá Jökulsá á Fjöllum í austri, að Skjálfandafljóti í vestri og inn á Vatnajökul í suðri. Landvörslustöðvar á láglendi eru á Gíg gestastofu og á hálendi í Drekagili og Herðubreiðarlindum.

Um ótímabundið vaktavinnustarf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samskipti við gesti þar sem lögð er áhersla á miðlun upplýsinga og fræðslu, meðal annars í formi fræðslugangna og barnastunda.
  • Afgreiðslu og upplýsingagjöf í gestastofu.
  • Umsjón og eftirlit með starfssvæðum ásamt vöktun náttúrufars til að tryggja verndun og sjálfbæra nýtingu svæðanna.
  • Viðhald innviða, s.s. merking gönguleiða, umhirða svæða og ræsting.
  • Eftirlit með leyfisskyldum framkvæmdum og viðburðum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og færni í að miðla upplýsingum á áhrifaríkan hátt.
  • Sterk þjónustulund, sveigjanleiki og lausnamiðuð nálgun við fjölbreyttar áskoranir.
  • Umhverfisvitund, verkkunnátta og áreiðanleiki með stundvísi að leiðarljósi.
  • Góð skipulagsfærni og hæfni til að starfa undir álagi.
  • Krafa er um landvarðaréttindi og gild ökuréttindi. Gild réttindi í fyrstu hjálp eru kostur.
  • Starfsreynsla á friðlýstum svæðum eða önnur reynsla sem tengist verkefnum landvarða t.d. náttúrutúlkun er kostur.
  • Þekking á viðkomandi starfssvæði er kostur.
  • Gott vald á íslensku og ensku, frekari tungumálakunnátta er kostur. 
Advertisement published15. September 2026
Application deadline23. September 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Skútustaðir, 660 Mývatn
Type of work
Professions
Job Tags