

Krílakot: Deildarstjóri
Dalvíkurbyggð óskar eftir að ráða deildastjóra í 100% starf frá og með 2. febrúar 2026 á leikskólann Krílakot á Dalvík. Leikskólinn Krílakot er 5 deilda heilsueflandi leikskóli sem vinnur eftir aðferðum Uppeldi til ábyrgðar. Önnur verkefni eru Lubbi finnur málbein, Orðaleikur, Grænfáni, útikennsla stærðfræði.
Gildi Krílakots eru Gleði – Sköpun – Þor og má finna nánari kynningu á starfi Krílakots hér.
· Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra.
· Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans.
· Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni.
· Sér um foreldrasamstarf á deildinni.
· Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra.
· Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
· Starfsreynsla á leikskólastigi æskileg.
· Jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
· Góð færni í mannlegum samskiptum.
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
· Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra.
· Stundvísi.
· Góð íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
· Hreint sakavottorð.
Icelandic










