Íslandshótel
Íslandshótel
Íslandshótel

Kokkur - vaktstjóri | Cook - Shift manager

Íslandshótel leitar að reyndum og ábyrgðarfullum kokki – vaktstjóra til starfa á Fosshótel Stykkishólmi. Vaktstjóri er lykilstarfsmaður í eldhúsi og ber ábyrgð á faglegri vaktstjórn, daglegum rekstri eldhúss og leiðsögn starfsfólks á sinni vakt, undir stjórn næsta yfirmanns.
Vertu hluti af fjölbreyttu og samheldnu teymi sem myndar öfluga liðsheild og veitir framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vaktstjórn í eldhúsi og fagleg leiðsögn starfsmanna á vakt
  • Umsjón með daglegum rekstri eldhúss, þar með talið matreiðslu, undirbúningi og frágangi
  • Eftirlit með gæðum, hreinlæti og öryggi samkvæmt verklagsreglum og HACCP
  • Þátttaka í innkaupum, birgðahaldi og vörumóttöku í samstarfi við yfirmann
  • Umsjón með þjálfun og fræðslu starfsmanna á vakt
  • Miðlun upplýsinga milli vakta og samstarf við aðra stjórnendur
  • Aðkoma að skipulagi vaktaplana og mönnun eftir þörfum

Hæfniskröfur

  • Reynsla af sambærilegu starfi er skilyrði
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Góð samskiptafærni, jákvætt viðmót og sterk þjónustulund
  • Frumkvæði, skipulag og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Öryggisvitund og þekking á HACCP er kostur

Í boði er húsnæði til leigu.

Fosshótel Stykkishólmur er þriggja stjörnu hótel með einstaklega fallegt útsýni yfir bæinn og eyjarnar í kring. Hótelið er tilvalinn áfangastaður fyrir þá sem vilja ferðast um Snæfellsnesið eða sigla um eyjarnar og skoða hið einstaka dýralíf sem þar finnst. Á hótelinu er að finna hlýlegt veitingahús sem býður upp á a la carte seðil þar sem hráefnið er sótt úr nærumhverfinu og innblásturinn kemur úr náttúrunni.

Lærðu meira um Fosshótel Stykkishólm

---------

    Íslandshótel is seeking an experienced and responsible Cook – Shift manager to join the team at Fosshótel Stykkishólmur. The Shift manager is a key member of the kitchen team and is responsible for professional shift management, the day-to-day operation of the kitchen, and leading staff on duty, under the supervision of the immediate manager.
    Be a part of a diverse and cohesive team with a strong team-spirit that provides excellent service.

    Key Responsibilities

    • Shift supervision in the kitchen and professional leadership of staff on duty
    • Oversight of daily kitchen operations, including cooking, preparation, and end-of-shift cleaning
    • Monitoring quality, hygiene, and safety in accordance with procedures and HACCP
    • Participation in purchasing, inventory control, and goods reception in cooperation with the manager
    • Responsibility for training and onboarding staff during shifts
    • Ensuring effective communication between shifts and collaboration with other managers
    • Assisting with shift planning and staffing as required

    Qualifications

    • Proven experience in a similar role is required
    • Relevant education is an advantage
    • Strong communication skills, a positive attitude, and a strong service mindset
    • Ability to work independently with good organizational skills and attention to detail
    • Strong safety awareness; knowledge of HACCP is an advantage

    Housing available for rent.

    Fosshotel Stykkishólmur is a 3-star hotel located in the beautiful fishing village of Stykkishólmur. Stykkishólmur, sometimes called the town of a thousand islands, is in the Northern part of the Snaefellsnes peninsula. The town exudes a charming ambiance, thanks to its vintage homes that transport you to a bygone era.

    Learn more about Fosshotel Stykkishólmur

      Advertisement published25. February 2026
      Application deadline4. March 2026
      Language skills
      EnglishEnglish
      Required
      Expert
      IcelandicIcelandic
      Required
      Intermediate
      Location
      Borgarbraut 8,
      Type of work
      Professions
      Job Tags