Osteria Bari
Osteria Bari
Osteria Bari

Kokkur (Chef) óskast

Við hjá Osteria Bari leitum að metnaðarfullum kokki til liðs við okkur. Við erum ítalskur vínbar og veitingastaður sem byggir á smáréttakonsepti, fersku hráefni og lifandi stemningu í hjarta Reykjavíkur.

Við vinnum með smárétti sem henta vel til að deila, þar sem hraði, nákvæmni og falleg framsetning skipta miklu máli. Um er að ræða kraftmikið eldhús með miklu flæði, sérstaklega á kvöldin og um helgar. Einnig bjóðum við upp á bröns um helgar, sem krefst sveigjanleika og góðs skipulags.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Undirbúningur og matreiðsla á smáréttum samkvæmt stöðlum staðarins

  • Gæðaeftirlit og frágangur á diskum

  • Vinna í hraðskreiðu og skipulögðu eldhúsi

  • Samvinna við þjónustuteymi til að tryggja flæði og upplifun gesta

  • Þátttaka í þróun og umbótum á matseðli

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af störfum í eldhúsi (skilyrði)

  • Reynsla af smáréttum / tapas / deilingarréttum er mikill kostur

  • Hraði, skipulag og geta til að vinna undir álagi

  • Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð

  • Jákvætt viðhorf og góð samskipti

Fríðindi í starfi
  • Samkeppnishæf laun fyrir réttan aðila

  • Sterkt og metnaðarfullt teymi

  • Tækifæri til að þróast í starfi og hafa áhrif

  • Vinna hjá öflugum rekstraraðila í miðbænum

Advertisement published7. April 2026
Application deadline13. April 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Intermediate
IcelandicIcelandic
Optional
Basic skills
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.Kitchen workPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Neatness
Professions
Job Tags