
Kerfisstjóri
Viltu vinna með nýjustu skýjalausnir og taka þátt í rekstri mikilvægra upplýsingakerfa?
Kerfisstjóri
Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins óskar eftir að ráða kerfisstjóra til starfa. Við óskum bæði eftir reyndum sérfræðingum og metnaðarfullum einstaklingum sem vilja þróast í faginu.
Sem kerfisstjóri hjá Umbru verður þú hluti af teymi sem ber ábyrgð á stöðugum og öruggum rekstri, ásamt framþróun upplýsingatækniþjónustu fyrir ráðuneyti og aðra ríkisaðila. Við erum í spennandi vegferð við að auka samrekstur, bæta tæknilega innviði og skapa umhverfi sem styður við aukna sjálfvirkni og samvinnu hjá ríkisaðilum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
· Rekstur og viðhald skýjalausna og staðbundinna kerfa
· Innleiðing nýrra kerfa og lausna (m.a. öryggislausna frá Microsoft)
· Eftirlit með kerfum ásamt atvikastjórnun og bilanagreiningu
· Aðstoð við lausn tæknilegra atvika og þjónustubeiðna
· Þátttaka í teymisvinnu við þróunar- og umbótaverkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
· Menntun í tölvunarfræði, kerfisfræði eða á tengdu sviði
· Reynsla af kerfisrekstri, skýjalausnum og öryggismálum er kostur
· Þekking á Microsoft 365 skýjalausnum
· Öguð vinnubrögð og rík öryggisvitund
· Metnaður til að ná árangri og hæfni til að tileinka sér nýjungar og breytingar
· Góð samstarfshæfni
· Rík þjónustulund og skipulagshæfni
· Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti
Hvað við bjóðum
· Fjölbreytt og krefjandi verkefni
· Tækifæri til að vinna með nýjustu skýja- og öryggislausnir
· Traust og sveigjanlegt vinnuumhverfi
Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2026. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku), þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum.
Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) og Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511-1225.
Icelandic
English










