Stykkishólmsbær
Stykkishólmsbær
Stykkishólmsbær

Kennari í stoðþjónustu

Um er að ræða 80% kennarastöðu þar sem viðkomandi starfar með stoðþjónustuteymi skólans og sinnir fjölbreyttum og sértækum verkefnum innan stoðþjónustu. Starfið felur meðal annars í sér kennslu og stuðning við nemendur, þátttöku í skipulagi náms og úrræða og náið samstarf við kennara, annað starfsfólk og foreldra með það að markmiði að mæta ólíkum þörfum nemenda og styðja við nám, þátttöku og vellíðan þeirra.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum.

Umsókn skal fylgja leyfisbréf, yfirlit yfir nám og fyrri störf ásamt rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda til starfsins.

Við hvetjum áhugasama kennara sem vilja taka þátt í fjölbreyttu, faglegu og skapandi skólastarfi til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla og stuðningur við nemendur með fjölbreyttar náms- og stuðningsþarfir.
  • Þátttaka í sértækum verkefnum og úrræðum á vegum stoðþjónustu skólans.
  • Samstarf við stoðþjónustuteymi, umsjónar- og faggreinakennara og annað starfsfólk.
  • Þátttaka í skipulagningu, framkvæmd og eftirfylgd einstaklingsmiðaðra náms- og stuðningsúrræða.
  • Samstarf við foreldra og, eftir því sem við á, aðra fagaðila.
  • Virk þátttaka í faglegu starfi og lærdómssamfélagi skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu í grunnskóla.
  • Reynsla og/eða þekking á stoðþjónustu og vinnu með nemendum með fjölbreyttar náms- og stuðningsþarfir er æskileg.
  • Hæfni og áhugi á að vinna með börnum og ungmennum.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvætt viðhorf og vilji til þátttöku í faglegu samstarfi og þróunarstarfi skólans.
Advertisement published22. September 2026
Application deadline6. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Borgarbraut 6, 340 Stykkishólmur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Independence
Professions
Job Tags