
Djúpavogsskóli
Djúpavogsskóli er einsetinn heildstæður skóli með um 80 nemendur í grunnskóla, úr dreifbýli og þéttbýli Djúpavogs. Í grunnskólanum er lögð mikil áhersla á samkennslu, samvinnu og þverfaglega vinnu nemenda og kennara. Mikil áhersla er lögð á að nýta hið stórkostlega umhverfi sem skólinn er staðsettur í, bæði við leik og störf. Hugrekki, virðing og samvinna eru einkunnarorð skólans og fléttast þau gildi á margþættan hátt inn í skólastarfið. Tónskóli Djúpavogs er hluti af Djúpavogsskóla og hann er starfræktur í skólanum.

Kennarar óskast til starfa við Djúpavogsskóla
Djúpavogsskóli auglýsir eftir kennurum til starfa næsta skólaár.
Djúpavogsskóli er samrekinn grunn- og tónlistarskóli með um 70 nemendur. Skólinn vinnur í takt við hæglætishugmyndir Cittaslow og leggur mikla áherslu á velferð og vellíðan. Starfsandinn er góður og tækifærin eru mörg fyrir skapandi og jákvæða einstaklinga. Skólinn er í mikilli þróun með áherslu á samþættingu, úti- og grenndarnám, núvitund, sjálfbærni og teymisvinnu. Við leitum að kennurum sem hafa farsæla kennslureynslu og eru tilbúin að taka þátt í þróunarstarfi og starfa eftir stefnu og framtíðarsýn skólans.
Um framtíðarstörf er að ræða og starfshlutföll geta verið samkomulag við skólastjóra sem er næsti yfirmaður.
Eftirtalin störf eru auglýst:
- Kennsla á yngsta-mið og unglingastig
- Íþrótta og sundkennara á yngsta- mið og unglingastigi.
- Tónlistarkennara við Tónlistarskóla Djúpavogs.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu nemenda samkvæmt meginmarkmiðum aðalnámsskrár grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda i samráði við samkennara og skólastjórnendur.
- Að taka virkan þátt í teymiskennslu, teymisvinnu og mótun og þróun skólastarfsins með velferð nemenda að leiðarljósi.
- Mikil áhersla á teymiskennslu, samþættingu námsgreina og skapandi skólastarf.
- Stuðla að jákvæðu og hvetjandi skólaumhverfi fyrir alla nemendur.
- Þátttaka í að þróa faglegt skólastarf.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við starfsfólk skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu skilyrði.
- Reynsla af kennslu æskileg
- Gott vald á íslenskri tungu og áhugi á að nýta upplýsingatækni í kennslu.
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
- Áhugi á teymiskennslu og samstarfi
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Mikil samskipta- og samstarfshæfni.
- Faglegur metnaður og lausnamiðuð hugsun.
- Stundvísi og samviskusemi
- Hreint sakavottorð
Advertisement published24. March 2026
Application deadline7. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Varða 1, 765 Djúpivogur
Type of work
Skills
ProactivePositivityTeacherAmbitionNon smokerConscientiousIndependence
Professions
Job Tags
Other jobs (2)
Similar jobs (12)

Urriðaholtsskóli - textílkennari
Urriðaholtsskóli

Umsjónarkennari - Kirkjubæjarstkóli
Skaftárhreppur

List- og verkgreinakennari - Kirkjubæjarskóli
Skaftárhreppur

Umsjónarkennari með áherslu á íþróttir, stærð- og náttúrufræði – Kirkjubæjarskóli
Skaftárhreppur

Sérkennslustjóri - Kirkjubæjarskóli
Skaftárhreppur

Deildarstjóri grunnskóladeildar - Kirkjubæjarskóli
Skaftárhreppur

Umsjónarkennari í miðdeild - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari á yngsta stigi - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari í yngri deild fyrir næsta skólaár - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær

Kennari - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær

Sérkennslustjóri – Heilsuleikskólinn Hamravellir (tímabundin ráðning)
Hafnarfjarðarbær

Kennarar óskast á miðstig og yngsta stig í Snælandsskóla
Snælandsskóli