

Jöklaleiðsögumaður - sumarstarf
Við leitum að jákvæðum og áreiðanlegum jöklaleiðsögumönnum sem hafa lokið AIMG Jökla 1 eða Jökla 2 námskeiði til starfa á Adventure Ground við Sólheima- og Mýrdalsjökla. Starfið hentar miðlungs til mikið reyndum leiðsögumönnum sem vilja vinna í fallegri og krefjandi náttúru. Unnið er skv. 7-7 vaktaskipulagi og húsnæði er í boði í vinnuvikum. Um tímabundna stöðu er að ræða frá miðjum apríl til miðs október, en byrjunardagsetning er sveigjanleg.
Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.
- Leiðsögn í jöklagöngum á Sólheimajökli og tengdum ferðum á svæðinu.
- Vinna eftir umhverfis-, öryggis- og gæðastöðlum fyrirtæksins.
- Viðhald á búnaði í notkun viðskiptavina.
- Önnur tilfallandi verkefni.
- AIMG Hard Ice 1 or 2 er nauðsynlegt, Alpine Trekking 1 er kostur.
- Gild skyndihjálparréttindi í óbyggðum (Wilderness First Responder ákjósanlegt)
- Gild ökuréttindi B eru nauðsynleg; D réttindi er kostur.
- Góð færni í ensku í töluðu máli er skilyrði.
- Framúrskarandi þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Reynsla af teymisvinnu og geta til að lifa í samlyndi með öðrum.
- Jákvæðni, snyrtimennska og stundvísi.
- Sjálfstæð, drífandi og skipulögð vinnubrögð.
English
Icelandic













