Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Íþróttamannvirki Reykjanesbæjar – Kvenkyns laugarvörður í Íþróttamiðstöð.

Íþróttamannvirki Reykjanesbæjar leita að kvenkyns laugarvörðum en um tvö störf er að ræða. Starfið felur í sér baðvörslu í kvennaklefa íþróttamiðstöðvarinnar, eftirliti með öryggi á sundlaugasvæði og umgengni auk almennra þrifa og annarra tilfallandi verkefna. Umsækjandi þarf að standast hæfnispróf sundstaða.

Vegna eðlis starfsins sem felur í sér reglulega viðveru í kvennabúningsklefa á meðan gestir nýta aðstöðuna er óskað eftir kvenkyns umsækjanda með hliðsjón af friðhelgi og persónuvernd gesta.

Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.

Um Íþróttamiðstöð Stapaskóla:

Íþróttamiðstöð Stapaskóla er nýtt og glæsilegt íþróttamannvirki, á skólatíma fer fram íþrótta- og sundkennsla en eftir skóla og um helgar er sundlaugin opin fyrir almenning og íþróttahúsið notað til æfinga og keppni. Í íþróttamiðstöðinni er 25 metra innisundlaug, setlaug inni og úti ásamt tveimur heitum pottum og einum köldum. Saunaklefi og infraklefi er í mannvirkinu. Í íþróttamiðstöðinni er stór og glæsilegur keppnisvöllur sem er notaður eftir skólatíma til æfinga og keppni.

Um Sundmiðstöðina/Vatnaveröld: Vatnaveröld býður upp á stórt og gott útisvæði með sundlaug, rennibraut, heitum og köldum pottum, ásamt gufu og blautgufu. Á innisvæðinu er 50 metra innilaug auk sundlaugar fyrir yngri börn.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Afgreiðsla og eftirlit við sundlaug
  • Eftirlit í búningsklefa kvenna á skólatíma
  • Almenn þrif á mannvirkinu
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
  • Umsækjandi þarf að standast hæfnispróf sundstaða
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Þjónustulund og stundvísi
  • Hreint sakavottorð er skilyrði
Advertisement published27. August 2026
Application deadline9. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Sunnubraut 31, 230 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.SwimmingPathCreated with Sketch.Customer servicePathCreated with Sketch.Cleaning
Work environment
Professions
Job Tags