Breiðagerðisskóli
Breiðagerðisskóli

Íþrótta- og sundkennari - 50% starf

Breiðagerðisskóli auglýsir 50% starf íþrótta- og sundkennara laust til umsóknar. Um er að ræða forföll til vors.

Breiðagerðisskóla eru um 350 nemendur í 1. til 7. bekk. Starfsmenn skólans eru um það bil 60 og eru þeir samhentur hópur sem hefur á undanförnum árum þróað skólann til þeirra starfshátta sem einkenna hann í dag. Grunnstefið í stefnu skólans er að lykillinn að góðri menntun og vellíðan barnanna sem við skólann nema leynist í samvinnu og samábyrgð starfsmanna skólans og annarra þeirra sem að starfsemi hans koma. Þetta birtist meðal annars í nánu samstarfi kennara og starfsfólks og virku foreldrafélagi sem styður vel við skólann og nemendur hans. Rík áhersla er lögð á skólaþróun í takt við menntastefnu Reykjavíkurborgar, nýjar rannsóknir á námi og kennslu og þróun samfélagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Faglegur metnaður.
  • Áhugi á að starfa með börnum.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Stundvísi og áreiðanleiki
Advertisement published3. December 2025
Application deadline18. December 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Breiðagerði 20, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags