Barnaskóli Kársness
Barnaskóli Kársness
Barnaskóli Kársness

ÍSAT kennari óskast í Barnaskóla Kársness

Barnaskóli Kársness er nýr skóli sem hýsir fjögurra deilda leikskóla og yngsta stig grunnskóla ásamt frístund. Skólabyggingin er öll hin glæsilegasta sem skapar spennandi tækifæri í skólastarfi fyrir um 60-80 leikskólabörn og um 300 nemendur í 1.-4. bekk.

Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum kennara til að sinna kennslu í íslensku sem annað tungumál (ÍSAT). Um spennandi starf er að ræða fyrir kennara sem vill taka þátt í uppbyggingu og mótun skólastarfs í nýjum skóla, börnum til heilla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla í íslensku fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku skv. aðalnámskrá
  • Skipulagning og aðlögun náms nemenda með mismunandi tungumála- og menningarbakgrunn
  • Þjálfun félagsfærni og sjálfstæðra vinnubragða nemenda
  • Stuðningur við nemendur í daglegu starfi í samstarfi við umsjónarkennara og deildarstjóra
  • Ráðgjöf við kennara og foreldra um nám og kennslu
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Framhaldsmenntun í kennslu íslensku sem annars tungumáls er æskileg
  • Reynsla af kennslu nemenda með mismunandi tungumála- og menningarbakgrunn æskileg
  • Reynsla af einstaklingsmiðaðri nálgun í kennslu
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði, umburðarlyndi og víðsýni
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð samstarfshæfni og sveigjanleiki
  • Skipulagshæfileikar
  • Góð þekking á upplýsingatækni
  • Mjög góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins

Advertisement published5. August 2026
Application deadline19. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Skólagerði 1, 200 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags