
Lífland ehf.
Lífland ræktar lýð og land. Þjónusta okkar sýnir ræktarsemi við grunnstoðir mannlífs um allt land. Með fjölbreyttu vöruúrvali og vísindalegum vinnubrögðum sköpum við góðan jarðveg fyrir hverskonar rækt; jarðrækt, búfjárrækt, nautgriparækt og hrossarækt.
Þungamiðjan í starfi okkar er þó ekki síst mannrækt í víðustu merkingu þess orðs. Íslendingar hafa sterka þörf fyrir að komast í snertingu við uppruna sinn og náttúru landsins.
Það gildir einu hver klæðist stígvélunum - stoltur bóndi, frískleg hestakona eða fjölskyldufaðir í sumarhúsi - þau vita hvar þau standa. Lífland gefur þeim þessa jarðtengingu.
Lífland er markaðsdrifið þjónustufyrirtæki sem leggur áherslu á að uppfylla þarfir og óskir viðskiptavina. Starfsemi fyrirtækisins lýtur annars vegar að þjónustu tengdri landbúnaði og tengist hins vegar hestaíþróttum, dýrahaldi, útivist og þjónustu við matvælaiðnaðinn.
Hlutverk Líflands er að bæta árangur viðskiptavina sinna. Við viljum sjá fyrir breytingar á þörfum okkar viðskiptavina og bjóða áhugaverðustu lausnirnar fyrir þá á hverjum tíma fyrir sig.
Lífland rekur tvær verksmiðjur, annars vegar fóðurverksmiðju á Grundartanga og hins vegar kornmyllu í Korngörðum í Reykjavík ásamt því að reka Nesbúegg. Skrifstofur og lager eru staðsett í Brúarvogi, Reykjavík. Verslanir Líflands eru á Lynghálsi, Reykjavík, Borgarbraut Borgarnesi, Grímseyjargötu Akureyri, Ormsvöllum Hvolsvelli, Efstubraut Blönduósi og Austurvegi Selfossi.

Innkaupafulltrúi
Innkaupafulltrúi
Lífland leitar að öflugum og framsæknum einstaklingi til þess að sinna starfi innkaupafulltrúa. Starfið felur aðallega í sér erlend innkaup ásamt ýmsum verkefnum í innkaupadeild. Innkaupafulltrúinn sem við leitum að er reynslubolti í innkaupum sem hefur gott vald á ensku, með reynslu af AGR innkaupakerfinu ásamt því að vera skipulagður og skemmtilegur starfskraftur í Líflands-liðið.
Nánari upplýsingar veitir Rannveig Hrólfsdóttir, mannauðsstjóri, [email protected]
Við hvetjum bæði konur og karla til þess að sækja um störf hjá Líflandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Innkaupapantanir og eftirfylgni innkaupa
- Samskipti við birgja og flutningsaðila, erlenda og innlenda
- Leyfisumsóknir og verðútreikningur innflutningsvara
- Kostnaðareftirlit og greiningar
- Eftirlit með birgðastöðu og gerð innkaupaáætlana
- Samningagerð við birgja og flutningsaðila ásamt eftirfylgni með samningum
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af innkaupum, vörustjórnun, birgðahaldi og skipulagi flutninga
- Reynsla af AGR innkaupakerfinu
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti á íslensku og ensku
- Góð tölvukunnátta
Advertisement published4. November 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Brúarvogur 1-3 1R, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
Stock managementProactiveContractsPhone communicationConscientiousIndependencePlanning
Professions
Job Tags
Other jobs (1)