Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Iðjuþjálfi eða iðjuþjálfanemi - Hraunvangur

Hrafnista Hraunvangi óskar eftir að ráða til sín iðjuþjálfa eða iðjuþjálfanema.
Starfshlutfall er samkomulagsatriði.

Starfið er fjölbreytilegt og krefst sjálfstæðra vinnubragða, lausnamiðaðrar hugsunar og góðrar samskiptahæfni. Um er að ræða spennandi starf sem býður upp á mikinn sveigjanleika og öfluga liðsheild ásamt mótun og þróun á starfinu.

Á Hrafnistu leitast iðjuþjálfar við að starfa einstaklingsmiðað þannig að þarfir hvers og eins séu hafðar að leiðarljósi, að viðkomandi hafi hlutverk og fái tækifæri til að njóta iðju sem hann hefur áhuga á hverju sinni. Þannig hefur þátttakan jákvæð áhrif á heilsu og vellíðan einstaklingsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á þeirri iðjuþjálfun sem hann veitir og mat á árangri meðferðar
  • Mat á færni, að veita færniþjálfun og ráðgjöf
  • Skráning og skýrslugerð
  • Þátttaka í hópastarfi
  • Þátttaka í þverfaglegu samstarfi/teymi
  • Þátttaka í fagþróun
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stundar nám í iðjuþjálfun eða hefur íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi 
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Strætóstyrkur
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Mötuneyti
  • Fjölskylduvænt og svegjanlegt starfsumhverfi
Advertisement published23. May 2025
Application deadline1. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Hraunvangur 7, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Independence
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags