atNorth
atNorth

HSE SÉRFRÆÐINGUR

atNorth heldur áfram að stækka á Akureyri og leitar nú að lausnamiðuðum og skipulögðum aðila starf HSE sérfræðings.

Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á öryggis, umhverfis- og heilbrigðismálum sem vill tryggja að vinnuumhverfið sé ávallt öruggt, faglegt og í samræmi við gildandi kröfur.

Í þessu starfi verður þú lykilaðili í að leiða og innleiða öfluga öryggismenningu innan fyrirtækisins og styðja við sjálfbærni og stöðugar umbætur hjá atNorth á Akureyri.

atNorth er ört vaxandi norrænt fyrirtæki sem sérhæfir sig í rekstri gagnavera með sterka áherslu á sjálfbærni, nýsköpun og að skapa frábæra upplifun á vinnustað.

Um er að ræða framtíðarstarf í fullu starfi sem hentar öllum kynjum.

Ef þú hefur ánægju af því að stuðla að öruggu og heilbrigðu starfsumhverfi og vilt starfa í jákvæðu, alþjóðlegu og vaxandi umhverfi, hvetjum við þig til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Innleiðing og eftirfylgni með HSE stefnum, ferlum og verklagsreglum í nánu samstarfi við stjórnendur
  • Þátttaka í þróun og eflingu samræmds verklags
  • Stöðugreiningar, skráning og miðlun upplýsinga um HSE til stjórnenda og hagaðila
  • Framkvæmd reglulegs eftirlits, áhættumats og öryggisúttekta auk þess að leiða umbótaverkefni
  • Atvikagreiningar, meðferð frávika og markviss innleiðing úrbóta
  • Skipulag og utanumahald þjálfunar og fræðslu í öryggis- og neyðarviðbrögðum auk aðkomu að æfingum og viðbragðsáætlunum
  • Að fylgjast með og skrá helstu umhverfisþætti starfseminnar og styðja við sjálfbærniverkefni atNorth
  • Önnur verkefni í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Er lausnamiðaður, skipulagður og með sterka öryggisvitund
  • Hefur framúrskarandi samskiptahæfni og á auðvelt með að vinna með fjölbreyttum hópi fólks þvert á teymi
  • Hefur reynslu af HSE málum, áhættumati, innleiðingu ferla og rannsókn atvika
  • Nýtur þess að vinna markvisst að umbótum og leiða jákvæða breytingu
  • Er sjálfstæður í vinnubrögðum, agaður og skipulagður
  • Hefur góða færni í íslensku og ensku
  • Hefur hreint sakavottorð
Helstu kostir þess að vinna hjá atNorth
  • Viðeigandi þjálfun, símenntun og tækifæri til að þróast í starfi
  • Heilsumiðað hugarfar með áherslu á jafnvægi milli vinnu og einkalífs
  • Íþróttastyrkur til að rækta líkama og sál
  • Skemmtinefnd sem heldur stemningunni lifandi
  • Veitingaþjónusta á vinnustaðinn
  • Fjarskiptapakki og símastyrkur
  • Alþjóðlegur vinnustaður með fjölbreytileika og fjölmenningu
Advertisement published18. February 2026
Application deadline1. March 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Rangárvellir 150130, 603 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Implementing proceduresPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags