Garðabær
Garðabær
Garðabær

Hofsstaðaskóli - stuðningsfulltrúi

Hofsstaðaskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúum í 75 – 100% starf skólaárið 2026-2027. Vinnutími er frá kl. 8:00-14:30/16:00. Stuðningsfulltrúar vinna með nemendum í nánu samstarfi við kennara, þroskaþjálfa og annað fagfólk á skólatíma og í frístundaheimili skólans.

Í Hofsstaðaskóla verða um 460 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 95 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.

Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda menntastefnu Garðabæjar. Þjónusta við nemendur er öflug.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og virka þátttöku í skólastarfi
  • Vinna eftir áætlun sem kennari hefur útbúið
  • Aðstoða nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
  • Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustofu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Reynsla af nemendum með sérþarfir æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi C-1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Dugnaður, jákvæðni, stundvísi og ábyrgðarkennd
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi
Advertisement published27. May 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags