
Elkem Ísland ehf
Elkem á Íslandi er hluti af sterkri alþjóðlegri heild, Elkem ASA, sem er einn af helstu framleiðendum heims á kísilafurðum.
Hjá Elkem Ísland starfa að jafnaði um 170 manns og eru 85% starfsfólksins búsett í nærliggjandi sveitarfélögum. Elkem Ísland er traustur og eftirsóknarverður vinnustaður. Áherslur fyrirtækisins er að hafa fjölbreytileikann að leiðarljósi. Hjá Elkem starfa einstaklingar með mismunandi hæfileika, áherslur og bakgrunn og hefur það skilað Elkem góðum árangri ásamt því að styðja við gildi fyrirtækisins um stöðugar framfarir.
Elkem Ísland leggur mikla áherslu á aðbúnað starfsfólks og öryggi þess ásamt sterkri fyrirtækjamenningu, hollustu, þjálfun og fræðslu. Stór hluti starfsfólks hefur unnið hjá fyrirtækinu í yfir 20 ár og hafa nokkrir náð 40 ára starfsaldri, en þeir voru við störf þegar verksmiðjan hóf rekstur.
Fyrirtækið framleiðir kísilmálm og kísilryk úr málmgrýti og kolefni. Við framleiðsluna er notuð orka sem framleidd er með vatnsafli. Dæmi um vörur sem innihalda kísilmálm frá Elkem Ísland eru m.a. rafmagnsstál fyrir spenna og rafmótora sem notaðir eru í rafmagnsbíla, hástyrktarstál fyrir vindmyllur, ryðfrítt stál fyrir farartæki, hnífapör, kúlur, legur, byggingarstál.

Hlutastarf sem hentar með námi
Viltu tryggja þér sumarstarf og eiga möguleika á að taka aukavaktir fram að sumri?
Við hjá Elkem Ísland leitum að öflugu fólki sem hefur áhuga á sumarstarfi hjá okkur næsta sumar, með möguleika á að byrja fyrr og taka aukavaktir samhliða námi.
Fram að sumri er hægt að vinna um helgar, jólafrí, páskar, í skólafríum og þegar tími gefst frá námi. Þannig færðu tækifæri til að kynnast störfunum og starfseminni áður en sumarvinnan hefst
Helstu verkefni og ábyrgð
Við leitum að einstaklingum sem:
- Hafa góða öryggisvitund og jákvætt viðhorf.
- Eru ábyrgir, stundvísir og samviskusamir.
- Geta unnið sjálfstætt og með öðrum.
- Eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt verkefni.
- Hafa náð 18 ára aldri og eru með ökuréttindi.
Advertisement published20. November 2026
Application deadline1. January 2027
Language skills
IcelandicRequired
Location
Grundartangal verksm 133675, 301 Akranes
Type of work
Suitable for
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Álkerfi leitar að öflugum starfsmanni í duftlökkun og sandblástur í Keflavík.
Álkerfi Ehf

Kjötvinnsla - framtíðarstarf
Kjötkompaní ehf.

Helper
Þórsgrjót ehf.

Starfsmaður á framkvæmdasviði Billboard
Billboard og Buzz

Viltu taka iðnnámið þitt hjá Orku náttúrunnar?
Orka náttúrunnar

Reykjanes: Starfsmaður í sorphirðu/garbage collector
Íslenska gámafélagið ehf.

Starfsmaður óskast í zinkhúðun á Akureyri.
Ferro Zink hf

Skoðunarmanneskja á björgunarbúnaði
Viking Life-Saving Equipment Iceland ehf.

starfsmaður í alglugga framleiðslu
'alfag ehf

FRAMTÍÐARSTARF Í LAMBHAGA GRÓÐRARSTÖÐ Í REYKJAVÍK
Lambhagi ehf.

Starfsmaður í áhaldahús Reykhólahrepps
Reykhólahreppur

Verka- og vélamenn
Garðlist ehf