
Sýn
Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.
Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.

Hlutastarf í verslun á Akureyri
Sölu- og þjónusturáðgjafi í verslun á Akureyri
Ertu snjöll sölumanneskja með framúrskarandi þjónustulund? Þá gæti starf sölu- og þjónusturáðgjafa í verslunum Sýnar á Akureyri verið rétta starfið fyrir þig. Í verslunum Sýnar kynnum við glæsilegt vöruúrval okkar fyrir viðskiptavinum, hjálpum þeim að velja vörur sem henta og aðstoðum við notkun. Sölu- og þjónusturáðgjafar eru með mikið keppnisskap, hafa brennandi áhuga á tækni og nýjungum og eru ávallt viðbúnir að leita að bestu lausnunum fyrir hvern viðskiptavin.
Við erum að ráða í hlutastarf í verslun á Akureyri. Hlutastarfið er unnið á virkum dögum og um helgar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sölu- og þjónustustörfum æskileg
- Framúrskarandi þjónustulund
- Ánægja af sölumennsku
- Snyrtimennska og fáguð framkoma
- Góð ensku- og tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Metnaður og frumkvæði
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg
Fríðindi í starfi
- Frábæra vinnufélaga
- Framúrskarandi vinnuaðstöðu
- Spennandi verkefni
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
- Möguleika á starfsþróun
- Internet- og farsímaáskrift auk sérkjara af sjónvarpsþjónustu
- Árlegan heilsustyrk
- Árlegan símtækjastyrk
- Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
- Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu
Advertisement published27. May 2026
Application deadline7. June 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Glerártorg 1, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Sölufulltrúi í Icewear Stykkishólmi
ICEWEAR

Kjötstjóri (hlutastarf) - Krónan Akureyri
Krónan

Sérfræðingur á Hvammstanga
Vinnumálastofnun

Þjónustufulltrúi í fraktdeild - Sumarstarf
DHL Express Iceland ehf

Sölumaður
Bílasala Reykjavíkur

Sumarstarf í verslun á Akureyri
Þór hf

Þjónustufulltrúi varahluta
BL ehf.

Akureyri: Hluta- og helgarstarf
Húsasmiðjan

Sölu- og þjónusturáðgjafi - Verslun
Sýn

Sölumaður á fyrirtækjasviði
SS - Sláturfélag Suðurlands

Ráðgjafi í verslun - Höfuðborgasvæðið
Bílanaust

Aðstoðar verkstjóri í framleiðsludeild
Trefjar ehf