Lyfja
Lyfja
Lyfja

Hjúkrunarfræðingur í hjúkrunarþjónustu Lyfju

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi í hjúkrunarþjónustu Lyfju í Lágmúla og/eða á Smáratorgi. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf í líflegu umhverfi þar sem aðaláherslan er á faglega þjónustu og ráðgjöf í heilsueflingu og forvörnum. Í hjúkrunarþjónustu Lyfju starfar hópur hjúkrunarfræðinga og sérhæfðs starfsfólks sem sinnir þjónustu við fjölbreyttan hóp viðskiptavina á lifandi og skemmtilegum vinnustað.

Hlutverk og ábyrgð

  • Þjónusta og ráðgjöf á heilsu- og hjúkrunarvörum, s.s. stómavörum, þvagleggjum og næringardrykkjum.
  • Hjúkrunarþjónusta, þar á meðal heilsufarsmælingar, sáraumbúðaskipti, eyrnahreinsun, sprautugjöf og árstíðabundnar bólusetningar.
  • Ráðgjöf og fræðsla um heilsueflingu og forvarnir.
  • Önnur tilfallandi verkefni tengd hjúkrunarþjónustu.

Hvaða hæfni þarft þú að hafa?

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi.
  • Þekkingu og áhuga á heilsueflingu og forvarnarstarfi.
  • Góða samskiptahæfni og ríka þjónustulund.
  • Getu til að vinna í teymi.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum.

Starfið

Um framtíðarstarf er að ræða og starfshlutfall eftir samkomulagi á opnunartíma hjúkrunarþjónustunnar. Staðsetning getur ýmist verið á Smáratorgi eða í Lágmúla eða á báðum stöðum, eftir samkomulagi og þörfum.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Urður G. Norðdahl, yfirhjúkrunarfræðingur Lyfju Lágmúla í síma 533-2300 og á [email protected]

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Advertisement published18. August 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Smáratorg 1, 201 Kópavogur
Lágmúli 5, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags