Dharma heilsa
Dharma heilsa

Heilsunuddari óskast í hlutastarf

Dharma heilsa (nudd- og snyrtistofa) er í nýrri aðstöðu í Tunguhálsi 19, 110 Reykjavík, á annarri hæð í lyftuhúsi. Nýja aðstaðan inniheldur tvö nuddherbergi, huggulega biðstofu, baðherbergi með sturtu og aðskilda kaffistofu fyrir starfsfólk.
Vinnuaðstaðan er fyrsta flokks! Nuddherbergið er 9 fm að stærð með stórum glugga (og myrkvunargardínu). Þar er nýlegur rafmagnsnuddbekkur með hitadýnu, hnakkastóll, infrarauður hitalampi, olíuhitari, handklæðahitari, spjaldtölva fyrir tónlist, hátalari, óléttupúði, breikkun á nuddbekkinn, teppi, koddar og pullur ásamt lökum sem þvegin eru hjá Fönn.
Bókanir fara í gegnum Noona bókunarappið og á heimasíðunni Dharmaheilsa.is þar sem einnig eru upplýsingar um meðferðirnar og meðferðaraðilana. Einnig er Dharma með Facebooksíðu með 1.400 fylgjendur og Instagramsíðu með yfir 1.000 fylgjendur.
Í dag erum við fjögur sem vinnum í Dharma, ég vinn sem heilsunuddari og snyrtifræðingur og hin þrjú eru útskrifaðir heilsunuddarar. Við erum með laust rými fyrir heilsunuddara nokkra seinniparta í viku, alla föstudaga og allar helgar ásamt tilfallandi heilum virkum dögum. Starfshlutfall og vinnutími er sveigjanlegur. Nuddarar verða ráðnir sem verktakar og eru góð laun í boði fyrir rétt fólk. Að auki fá nuddarar 5% sölulaun fyrir sölu á vörum og gjafakortum.
Ég legg mikla áherslu á gæði og háan standard, sem viðskiptavinir Dharma hafa vanist undanfarin 4 ár. Á þeim grundvelli er ég búin að byggja upp stóran viðskiptavinahóp sem ég næ engan veginn að sinna sjálf og því óska ég eftir metnaðarfullum heilsunuddurum sem ég get með góðri samvisku mælt með fyrir mína nuddþega! Auk metnaðar í starfi legg ég áherslu á góða nærveru, mikla þjónustulund, glaðlyndi, stundvísi og áreiðanleika!
Ekki hika við að hafa samband ef þú hefur einhverjar spurningar eða vilt koma og kíkja á aðstöðuna.
Advertisement published18. September 2024
Application deadline30. October 2024
Language skills
IcelandicIcelandicIntermediate
EnglishEnglishIntermediate
Location
Tunguháls 19, 110 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags