Eir hjúkrunarheimili
Eir hjúkrunarheimili
Eir hjúkrunarheimili

Heilbrigðisgagnafræðingur - Eir hjúkrunarheimili

Eir hjúkrunarheimili óskar eftir að ráða heilbrigðisgagnafræðing til starfa, æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfshlutfall og vinnutími er umsemjanlegt.

Heilbrigðisgagnafræðingur meðhöndlar heilbrigðis- og persónuupplýsingar vistmanna hjúkrunarheimilisins. Hann stýrir og sinnir gæðaeftirliti sem miðar að því að tryggja áreiðanleika gagna og ber ábyrgð á móttöku heilbrigðisupplýsinga, skipulagningu skráninga, kóðun, úrvinnslu og vistun sem og miðlun upplýsinga og gagna. Starfar sjálfstætt í samræmi við gildandi lög og reglugerðir um meðhöndlun heilbrigðis- og persónuupplýsinga og þarf að fylgjast vel með nýjungum og framþróun á starfsviði sínu.

Upplagt starf fyrir þá sem búa í Grafarvogi eða nágrenni og eru þreyttir á umferðinni 😊

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Meðhöndlun, skráning, úrvinnsla og vistun heilbrigðisgagna í rafræna sjúkraskrá
  • Aðstoð við kerfisstjórnun
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Próf í læknaritun/heilbrigðisgagnafræði úr viðurkenndum skóla og með starfsleyfi frá Landlækni
  • Góð tölvukunnátta
  • Reynsla í notkun Sögu og Heilsugáttar æskileg
  • Góð færni í Excel
  • Jákvætt viðmót, frumkvæði og góð samskiptahæfni
  • Góð íslensku kunnátta er skilyrði
  • Nemar í heilgbrigðisgagnafræði koma einnig til greina
Advertisement published8. November 2024
Application deadline28. November 2024
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Hlíðarhús 7, 112 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags