Myndgreiningarrannsóknarstöð Hjartaverndar ehf.
Myndgreiningarrannsóknarstöð Hjartaverndar ehf.
Myndgreiningarrannsóknarstöð Hjartaverndar ehf.

Heilbrigðisgagnafræðingur

Myndgreining Hjartaverndar óskar eftir að ráða heilbrigðisgagnafræðing

Myndgreining Hjartaverndar leitar að jákvæðum, skipulögðum og metnaðarfullum heilbrigðisgagnafræðingi til starfa. Um er að ræða 50–100% starf þar sem viðkomandi gegnir mikilvægu hlutverki í daglegri starfsemi fyrirtækisins og hefur bein áhrif á gæði þjónustunnar sem við veitum viðskiptavinum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur fyrst og fremst í sér ritun og frágang dikteringa myndgreiningarlækna, auk afgreiðslu tilvísana og rannsóknarsvara í Sögu sjúkraskrá. Unnið er í nánu samstarfi við lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk þar sem lögð er áhersla á nákvæmni, skilvirkni og gæði í þjónustu.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi hjá embætti landlæknis sem heilbrigðisgagnafræðingur
  • Jákvæðni, góð samskiptahæfni og þjónustulund
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð tölvufærni (þekking á Sögu er kostur)
  • Hreint sakavottorð
Advertisement published7. April 2026
Application deadline7. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Holtasmári 1, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags