Leikskólinn Reykjakot
Leikskólinn Reykjakot
Leikskólinn Reykjakot

Hefur þú gaman af því að leika, skapa og vinna með börnum?

Leikskólinn Reykjakot í Mosfellsbæ leitar að áhugasömu og jákvæðu starfsfólki í hlutastarf. Við erum sveigjanleg varðandi starfshlutfall og leitum að fólki sem getur unnið hluta úr degi eða ákveðna daga í viku, eftir samkomulagi. Starfið gæti því hentað vel með námi.

Í Reykjakoti leggjum við áherslu á leik, lýðræði, samskipti, útiveru og nám í gegnum leik. Við viljum fá til liðs við okkur fólk sem hefur áhuga á að vinna með börnum, er tilbúið að taka þátt í daglegu starfi og vill læra og þróast með okkur.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni

  • Taka þátt í leik og daglegu starfi með börnum
  • Styðja við börn í leik, samskiptum og námi
  • Taka þátt í útiveru og fjölbreyttum verkefnum
  • Vinna í samstarfi við annað starfsfólk
  • Stuðla að öryggi, vellíðan og góðri upplifun barna
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að þér sem

  • Ert 18 ára eða eldri
  • Hefur góða íslenskukunnáttu
  • Hefur áhuga á að vinna með börnum
  • Ert jákvæð/ur, ábyrg/ur og stundvís
  • Átt auðvelt með samskipti og samvinnu
  • Hefur áhuga á leikskólastarfi og ert tilbúin/n að taka þátt í fjölbreyttu starfi

Reynsla af starfi með börnum er kostur en ekki skilyrði.

Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur 
  • Líkamsræktarstyrkur 
  • Sundkort 
  • Starfsmannaafsláttur á leikskólagjöldum í leikskólum Mosfellsbæjar
  • 36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega.  Starfsfólk safnar því tveimur stundum vikulega sem nýttir eru sem frí á skráningardögum leikskóla Mosfellsbæjar sem eru 10 á ári.
Advertisement published8. September 2026
Application deadline30. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Krókabyggð 2, 270 Mosfellsbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Care (children/elderly/disabled)PathCreated with Sketch.Patience
Suitable for
Professions
Job Tags