Arion banki
Arion banki
Arion banki

Hefur þú áhuga á gervigreind, sjálfvirkni og umbótum?

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum einstakling í teymið rekstur og þróun á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði. Rekstur og þróun annast fjölbreytt verkefni fyrir fyrirtæki, sem og stoðþjónustu við önnur teymi sem sinna fyrirtækjum innan bankans. Helstu markmið teymisins eru að auka skilvirkni í þjónustu við fyrirtæki, stuðla að þróun stafrænna lausna og auka ánægju og tryggð viðskiptavina.

Um er að ræða nýtt spennandi starf sem felst meðal annars sinna gagnagreiningum, miðla niðurstöðum og taka þátt í frekari innleiðingu á gervigreindar- og sjálfvirknitólum fyrir sviðið, í nánu samstarfi við upplýsingatæknisvið bankans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna með starfsfólki þvert á sviðið til að skilja þarfir og tryggja aðgengi að gögnum sem nýtast í ákvarðanatöku.
  • Greina stór gagnasöfn og umbreyta gögnum til að styðja við rekstur sviðsins og veita hagnýta innsýn fyrir stjórnendur og teymi.
  • Fylgjast með þróun gervigreindar, vélrænu námi og öðrum tækniþróunum sem tengjast gagnavinnslu.
  • Greining og útfærsla sjálfvirkra ferla (RPA), þróun erindreka (e. AI agents) og annarra lausna sem auka skilvirkni og einfalda verkferla.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í verkfræði, stærðfræði, tölvunarfræði eða öðru sem nýtist í starfi.
  • Áhugi og þekking á gagnagreiningu, líkanagerð og forritun (SQL, Python, R eða sambærilegt).
  • Þekking á Power BI eða öðrum greiningartólum.
  • Þekking á sjálfvirknitólum, t.d. Power platform suite (Power Automate, Copilot Studio) og Blue Prism, er kostur.
  • Þekking á rekstri fyrirtækja, lestri ársreikninga og lykiltölum kostur.
  • Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í starfi.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum.
Advertisement published9. February 2026
Application deadline22. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Artificial intelligencePathCreated with Sketch.Microsoft Power PlatformPathCreated with Sketch.Power BIPathCreated with Sketch.SQL
Professions
Job Tags