Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðuneytið

Hefur þú áhuga á að efla almannavarnir ? 

Dómsmálaráðuneytið leitar að öflugum sérfræðingi á skrifstofu löggæslumála. Skrifstofan hefur umsjón með málaflokkum er varða almannaöryggi og öryggismál en í því felast málefni löggæslu, landhelgisgæslu, almannavarnir, áfallaþol ásamt leit og björgun.

Helstu verkefni og ábyrgð

Við leitum að sérfræðingi sem hefur metnað til að læra, þróast í starfi og takast á við áskoranir. Verkefnin eru fjölbreytt og lærdómsrík þar sem áhersla er lögð á stefnumótun almannavarna og áfallaþols og úrlausn mála sem tengjast þeim verkefnum hjá ráðuneytinu. Jafnframt er lögð áhersla á öflugt samstarf við þá fjölbreyttu aðila sem koma að almannavörnum og áfallaþoli.  

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Grunn- eða meistaranám sem nýtist í starfi. 

  • Þekking og reynsla á verkefnum almannavarna og/eða áfallaþols er kostur.  

  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.   

  • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu. 

  • Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.   

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.  

Advertisement published3. March 2026
Application deadline13. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Skúlagata 4, 101 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags