Listaháskóli Íslands
Listaháskóli Íslands
Listaháskóli Íslands

Háskólakennari í fræðum myndlistar við LHÍ

Laust er til umsóknar starf háskólakennara í fræðum myndlistar við myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Starfið felur í sér kennslu, umsjón og rannsóknir.

Um fullt starf er að ræða. Ráðið er í starfið frá 4. ágúst 2026.

Listaháskóli Íslands er leiðandi í sköpun og miðlun þekkingar í listum, eflir listræna fagmennsku og er í fararbroddi við þróun almennrar menntastefnu í listum. Listaháskólinn er hreyfiafl í síbreytilegum heimi og gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu sem eini háskólinn á fræðasviði lista á Íslandi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið er unnið í samræmi við reglur Listaháskólans um akademísk störf sem eru í gildi hverju sinni.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistaragráða sem nýtist í starfi
  • Starfsreynsla á sviði myndlistar eða fræðasviði myndlistar
  • Kennslureynsla á háskólastigi
  • Þekking á listrannsóknaumhverfi samtímans
  • Samskiptahæfni, áreiðanleiki og skipulagfærni
  • Afbragðs hæfni til að miðla efni í töluðu og rituðu máli
  • Góð íslenskukunnátta er kostur

Við ráðningu verður meðal annars litið til þess hvaða hæfileika ætla megi að umsækjandi hafi til samstarfs við aðra og hvernig eiginleikar hans geti nýst til starfa innan skólans. Doktorsgráða er kostur. Frammistaða í viðtölum mun hafa mikið vægi við ákvörðun ráðningar. Að loknu viðtalsferli verður hæfi valinna umsækjenda metið samkvæmt reglum Listaháskóla Íslands um veitingu akademískra starfa, sjá nánar á lhi.is/log-og-reglur – umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglurnar við gerð umsóknar. 

Advertisement published16. February 2026
Application deadline16. March 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Laugarnesvegur 91, 105 Reykjavík
Stakkahlíð 1, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Research papersPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.TeacherPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.Research
Work environment
Professions
Job Tags