Akureyri
Akureyri
Akureyri

Glerárskóli: Sérkennari

Við Glerárskóla er laus til umsóknar 100% staða sérkennara. Starfið er tímabundið skólaárið 2026-2027 og er ráðið í stöðuna frá 1. ágúst 2026.

Í Glerárskóla eru um 300 nemendur og um 65-70 starfsmenn. Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI og vinnur skólinn samkvæmt hugmyndafræði jákvæðs aga og Olweusar. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám, góða stoðþjónustu, verkgreinar og teymisvinnu. Glerárskóli leitast við að undirbúa nemendur undir líf og starf með því að aðstoða þá við að finna og efla hæfileika sína, taka ábyrgð á eigin námi og gjörðum og efla andlegt og líkamlegt heilbrigði.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is

Leitað er að hugmyndaríkum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur sýnt árangur í störfum sínum, á auðvelt með að sýna sveigjanleika, hafa frumkvæði, á auðvelt með öll samskipti og sem leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við annað starfsfólk, stjórnendur skólans og forráðamenn.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Er hluti af stoðteymi skólans ásamt sérkennurum, iðjuþjálfa, námsráðgjafa og ÍSAT kennara.
  • Sinnir sérkennslu nemenda sem þurfa sértæka aðstoð í námi og tekur þátt í lausnaleit og vinnu hvað varðar þátttöku þeirra í daglegu skólastarfi.
  • Aðstoðar umsjónarkennara við gerð einstaklingsmiðaðra náms- og stundaskráa.
  • Veitir kennurum, nemendum og foreldrum ráðgjöf varðandi nám, kennslu og námsgögn.
  • Útbýr kennslugögn og aflar nýrra í samræmi við þarfir einstakra nemanda.
  • Er teymisstjóri í nemendamálum.
  • Er þátttakandi í markvissri nýbreytni og þróunarstarfi stoðþjónustu skólans.
  • Starfar undir leiðsögn verkefnastjóra stoðþjónustu.
  • Starfar undir stjórn deildarstjóra og skólastjóra skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
  • Framhaldsnám á sviði sérkennslu er æskilegt.
  • Réttindanám í LOGOS er æskilegt.
  • Hefur á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af mismunandi þörfum, áhuga og getu nemenda.
  • Góð þekking á kennslu og uppeldisfræðum.
  • Áhugi og metnaður til að vinna með stoðþjónustuteymi skólans og fylgja sýn hans og stefnu.
  • Frumkvæði og samstarfsvilji.
  • Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum.
  • Góðir skipulagshæfileikar.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Reglusemi og samviskusemi.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Advertisement published17. February 2026
Application deadline8. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Höfðahlíð 148442, 603 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Flexibility
Professions
Job Tags