Salaskóli
Salaskóli
Salaskóli

Frístundaleiðbeinendur

Í Salaskóla vantar frístundaleiðbeinendur fyrir skólaárið 2026-2027.

Um er að ræða hlutastörf sem geta hentað vel með námi. Vinnutími virka daga kl. 13:00-16:00/16:30. Ráðning frá 10. ágúst.

Salaskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1. til 10. bekk, staðsettur á grónu svæði við Versali í Kópavogi. Skólinn var stofnaður árið 2001 og fagnar því 25 ára starfsafmæli á þessu ári. Í skólanum eru tæplega 500 nemendur og þar starfar vel menntað og metnaðarfullt starfsfólk. Áhersla er á einstaklingsmiðun og fjölþætta nálgun í starfi með nemendum, teymisvinnu og jákvæðan skólabrag og gott samstarf við foreldra og nærsamfélagið. Í Salaskóla er rekin sérdeild fyrir börn með einhverfu. Gildi Salaskóla eru vinátta, virðing og samstarf.

Í starfi frístundaleiðbeinenda felst stuðningur við nemendur í 1.-4. bekk í frístundastarfi eftir að formlegum skóladegi lýkur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hópa- og klúbbastarf með nemendum í fjölbreyttum aðstæðum í frístundastarfi, inni og úti.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans, áætlunum og verkefnalýsingum.
  • Samstarf við aðila skólasamfélagins um hagsmuni nemenda.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og umburðarlyndi.
  • Stundvísi og reglusemi og geta tekið leiðsögn.
  • Vilji til að vinna samkvæmt stefnu skólans í góðu samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk. 
  • Frumkvæði og jákvæðni.
  • Góð tök á íslensku. 
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

Advertisement published22. July 2026
Application deadline5. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Versalir 5, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Patience
Suitable for
Work environment
Professions
Job Tags