Varmárskóli
Varmárskóli
Varmárskóli

Frístundaleiðbeinandi í Varmárskóla

Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt sumarstarfstarf með börnum í 1.-4.bekk

Um sumarstarf er að ræða en möguleiki er á áframhaldandi starfi í vetur. Sumarfrístund er starfrækt 11.-26.júní og 10.-21.ágúst. Vinnutíminn í sumarfrístund er kl. 08:00-16:00.

Frístundaleiðbeinendur taka þátt í skipulagningu faglegs frístundastarfs og leiðbeina börnum í leik og starfi í samvinnu við samstarfsfólk. Vinnutími er kl. 13:10-16:00/16:30 virka daga á veturna.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Undirbúningur fyrir starfsemina hverju sinni og tiltekt að henni lokinni.
  • Leiðbeina og tryggja þátttöku barnanna í starfi með styrk þeirra að leiðarljósi.
  • Ýta undir leik, sköpun og lýðheilsu.
  • Vinna gegn andfélagslegri hegðun og skapa öruggt umhverfi.
  • Leysa úr ágreiningnum, leiðbeina samræðum barna, ýta undir vinsemd og styðja börnin í að eiga við tilfinningar sínar.
  • Skapa lýðræðislegt umhverfi þar sem börnin eiga kost á því að tjá sig og hafa áhrif á starfsemina.
  • Stíga inn í fjölbreytt hlutverk eftir þörfum og hæfni.
  • Stýra smiðjum, yfirumsjón með valstöðum, fylgja á eftir viðveru og mætingu barna.
  • Önnur hlutverk sem styðja við og eða bæta gæði starfsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Samskipta- og samvinnuhæfni.
  • Jákvætt og lausnamiðað hugarfar.
  • Sveigjanleiki og hjálpsemi.
  • Þolinmæði og umhyggjusemi.
  • Hæfni til þess að lesa í aðstæður.
  • Tæknilæsi eða vilji til þess að nýta tækni í starfi.
  • Hreint sakavottorð.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Lágmarks aldur 18 ára (eða að verða 18 ára á árinu).
Advertisement published24. March 2026
Application deadline13. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Skólabraut 1A, 270 Mosfellsbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.Quick learnerPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.Team work
Suitable for
Professions
Job Tags