Frístundaleiðbeinandi í Strandabyggð
Laus er hlutastaða leiðbeinanda við Ozon og frístundaþjónustu Strandabyggðar sem staðsett er á Hólmavík á Ströndum.
Starfstími samræmist skóladagatali og er eftir hádegi alla daga og á fimmtudögum fram á kvöld v. opnunar Ozon.
Helstu verkefni og ábyrgð
* Leiðbeina börnum í leik og starfi
* Samráð og samvinna við börn og starfsfólk
* Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla og aðra sem koma að starfinu
Hæfniskröfur
* Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
* Áhugi á að vinna með börnum
* Frumkvæði og sjálfstæði
* Færni í samskiptum
Farið er fram á hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veitir Tómstundafulltrúi Andri Freyr Arnarsson andrifreyr@strandabyggð eða i síma 866-0101
Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar. Umsóknir sendist á [email protected]
Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi