Gæðabakstur
Gæðabakstur
Gæðabakstur

Framtíðarstarf í framleiðslubakaríi

Gæðabakstur auglýsir eftir kraftmiklum einstaklingi til starfa við framleiðslu og pökkun á brauðvörum og kökum. Um framtíðarstarf er að ræða í rótgrónu og vel búnu framleiðslubakaríi þar sem unnið er eftir ströngum gæðaferlum.

Hjá Gæðabakstri starfar öflugur hópur einstaklinga sem kappkostar við að koma gæðavöru á borð neytenda. Lögð er áhersla á virðingu, traust og góða þjónustu.

Starfsfólk í framleiðslu sinnir fjölbreyttum verkefnum við framleiðslu, pökkun, undirbúning fyrir dreifingu og frágang.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoð við bakstur á framleiðsluvörum fyrirtækisins
  • Undirbúningur fyrir dreifingu
  • Frágangur og þrif
  • Pökkun á vörum
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af matvælaframleiðslu eða bakstri er kostur
  • Samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð samskiptahæfni á íslensku og/eða ensku er skilyrði
  • Stundvísi, snyrtimennska og áreiðanleiki
Advertisement published11. March 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Lyngháls 7, 110 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags