Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.
Forstöðumaður frístundar
Borgarbyggð óskar eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling til starfa sem forstöðumaður yfir frístundaheimilunum í Borgarbyggð. Þar þjónustum við börn í 1-4 bekk á fjórum starfsstöðvum; Borgarnesi, Hvanneyri, Kleppjárnsreykjum og Varmalandi.
Um er að ræða 100% starf.
Leiðarljós frístundaheimila er að bjóða öllum börnum þátttöku í fjölbreyttu frístundastarfi án aðgreiningar með það að markmiði að efla sjálfstraust og félagsfærni þeirra. Einnig að bjóða upp á umhverfi sem einkennist af öryggi, fagmennsku og virðingu þar sem jákvæð samskipti og lýðræðislegir starfshættir eru í hávegum hafðir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Forstöðumaður ber ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd starfsins á fjórum starfsstöðvum ásamt aðstoðarforstöðumönnum og umsjónarmönnum. Hann sér um að efla félagsfærni og jákvæða sjálfsmynd barnanna og að viðfangsefni í frístund séu fjölbreytt og að öll börn finni eitthvað við sitt hæfi.
- Stjórnun starfsmanna og almenn leiðsögn í starfi og eftirlit með frammistöðu er á hans hendi og einnig skipulag vinnutilhögunar starfsmanna.
- Forstöðumaður sér um að starf frístundar sé í samræmi við verklagsreglur Borgarbyggðar og reglur um hlutverk frístundaheimila sem gefnar voru út af mennta og menningarmálaráðuneytinu.
- Forstöðumaður frístundar ásamt aðstoðarforstöðumönnum sjá um undirbúning og framkvæmd á Sumarfjöri sem er leikjanámskeið fyrir 1.-4. bekk.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði uppeldis, félags- eða tómstundamála.
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Reynsla af starfi með börnum.
- Reynsla af félags og tómstundastarfi.
- Reynsla af stjórnun.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Borgarbyggðar.
- Góð íslenskukunnátta.
Fríðindi í starfi
- Heilsustyrkur
- Sveigjanlegur vinnutími
- Ýmis afsláttarkjör
Advertisement published12. September 2024
Application deadline26. September 2024
Language skills
IcelandicVery good
EnglishIntermediate
Location
Gunnlaugsgata 13, 310 Borgarnes
Type of work
Skills
ProactivePositivityHuman relationsAmbitionIndependencePlanning
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (2)
Similar jobs (12)
Forstöðumaður Viðskiptaeftirlits
Íslandsbanki
Deildarstjóri verkefnastofu (PMO)
Icelandair
Framleiðslustjóri
Signa ehf
Aðstoðarrekstrarstjóri
Dropp
Verkefnastjóri - vinnuáætlanir og innri störf
PwC
Verkefnastjóri í félagsmiðstöðina Setrið– Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær
Verkefnastjóri veflausna
Advania
Forstöðumaður/kona Kaffistofu Samhjálpar
Samhjálp
Viðskiptastjóri fyrirtækja
VÍS
Vörustjóri hugbúnaðarlausna á þróunarsviði
Landspítali
Verkefnastjóri á verkefnastofu
Umhverfis- og skipulagssvið
Heilsu- og tómstundafulltrúi óskast
Grímsnes- og Grafningshreppur