Origo hf.
Origo hf.
Origo hf.

Forritari með reynslu í Dynamics 365 Business Central

Kannt þú að búa til lausnir í Business Central?

Við leitum að reynslumiklum forritara sem er tilbúinn að þróa og útfæra sérlausnir í Dynamics 365 Business Central

Hver erum við

  • Við erum nýsköpunarfyrirtæki sem veitir framúrskarandi þjónustu á sviði upplýsingatækni

  • Við erum markmiðadrifin og með áherslu á stöðugar umbætur og skilvirka teymisvinnu

  • Við leggjum áherslu á skapandi hugsun, samvinnu og árangur

Að hverju erum við að leita?

  • Við leitum að reynslumiklum forritara til þess að leiða og móta þjónustu framtíðarinnar í síbreytilegum heimi upplýsingatækninnar

  • Við leitum að einstaklingi sem brennur fyrir Business Central og tækni

Hvað kemur þú til með að gera?

  • Þú munt hanna, þróa og útfæra sérlausnir í Dynamics 365 Business Central

  • Þú munt vera í nánu samstarfi við ráðgjafa og verkefnastjóra ásamt því að vinna með viðskiptavinum við greiningar á þörfum og hvernig hægt er að leysa þær á tæknilegan hátt

  • Þú munt aðstoða og þjálfa yngri forritara til að tryggja gott verklag og gæði

  • Þú munt vinna að samþættingum, gagnaflutningi og sjálfvirknivæðingu viðskiptaferla

  • Þú munt vinna í teymi við að bæta og þróa áfram Dynamics 365 Business Central lausnir Origo með notendaupplifun og skilvirkni í huga

  • Þú munt vinna við að bilanagreina og leysa verkefni á skilvirkan og árangursríkan hátt

  • Þú munt fá tækifæri til að fylgjast með og tileinka þér nýjungar í Business Central og vera með frumkvæði í nýtingu þeirra

Hæfni sem þú þarft að hafa

  • Þú þarft yfirgripsmikla reynslu af þróun lausna í Business Central (AL programming language, C/AL)

  • Þú þarft að geta unnið með þverfaglegum hópi ráðgjafa og verkefnastjóra að verkefnum fyrir viðskiptavini

  • Þekkingu á Microsoft Azure, Power Automate og Power BI kostur

  • Mikla hæfni í að leysa verkefni og finna lausnir á skjótan og árangursríkan hátt

  • Framúrskarandi samskiptahæfileika og vilja til að vinna í teymi

  • Getu til að forgangsraða og stjórna mörgum verkefnum í einu

  • B.Sc. gráða í tölvunarfræði, verkfræði, upplýsingatækni eða sambærilegu

Það væri frábært ef þú værir með

  • Vottun í Dynamics 365 Business Central eða tengdri tækni

  • Reynslu af öðrum fjárhagskerfum

  • Reynslu af Agile/Scrum þróunaraðferðum

Það sem við bjóðum

  • Gagnkvæmt traust og sveigjanleika í starfi

  • Heilbrigðan vinnustað með frábært mötuneyti og líkamsrækt

  • Fyrsta flokks tækni, frábært starfsumhverfi og öflugt félagslíf

  • Hvatningu til að þróast í starfi og bæta við þig þekkingu og / eða tæknigráðum

  • Hjá okkur færðu tækifæri til að taka þátt í að þróa áfram spennandi lausnir með tæknina að vopni

  • Öfluga velferðar-og heilsustefnu

  • Styrki, s.s. íþróttastyrk, samgöngustyrk o.fl.

Ert þú þessi reyndi forritari með ástríðu fyrir Dynamics 365 Business Central og leitar af krefjandi tækifæri, viljum við heyra í þér.

Origo er nýsköpunarfyrirtæki sem veitir þríþætt framboð í upplýsingatækni: rekstrarþjónustu, hugbúnað og notendabúnað. Origo á rætur sínar að rekja allt til ársins 1899, frá skrifstofuvélum og fyrstu tölvunni hefur fyrirtækið vaxið og dafnað í áranna rás. Við trúum að „betri tækni bæti lífið“ og erum stöðugt að þróa lausnir með það markmið að tryggja árangur viðskiptavina okkar. Origo er leiðandi samstarfsaðili fyrirtækja og stofnana á Íslandi.

Mannauðsstefna

Það er stefna Origo að vera fyrsta val hjá einstaklingum sem trúa því að betri tækni bæti lífið. Við kunnum að meta einlægni, forvitni og lausnarmiðað hugarfar í bland við alls konar tæknifærni. Við byggjum á liðsheild og leggjum áherslu á að ýta undir styrkleika hvors annars og þróast áfram.

Saman breytum við leiknum!

Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum til að læra meira um vinnustaðinn.

Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar nk. Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað. Nánari upplýsingar veita sérfræðingar á mannauðssviði Origo.

Advertisement published3. February 2025
Application deadline16. February 2025
Language skills
No specific language requirements
Location
Borgartún 37, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AgilePathCreated with Sketch.AzurePathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.Power BIPathCreated with Sketch.SCRUM
Professions
Job Tags