

Fjölbreytt sumarstörf á hafnarsvæði
Við óskum eftir að ráða öflugt sumarstarfsfólk á hafnarsvæði okkar við Kjalarvog.
Á hafnarsvæði eru mjög fjölbreytt verkefni, þau helstu eru losun og lestun skipa, afgreiðsla gámabíla inn og út af svæði, vinna við hitastýrða gáma og fleira. Helstu verkefnin í frystigeymslu eru móttaka og afhending á frosnum afurðum. Á bílavelli eru helstu verkefnin móttaka á nýjum og notuðum bílum, sem og önnur afgreiðsla á stærri vörum.
Helstu verkefni
- Losun og lestun skipa
- Móttaka og afgreiðsla pantana í frystigeymslu
- Losun bíla úr gámum, sjónskoðun og umsýsla bíla
- Afgreiðsla gámabíla
- Ýmis önnur verkefni
Hæfnikröfur og reynsla
Sumarstarfsfólk Samskipa þurfa að uppfylla neðangreindar hæfnikröfur:
- Aldur 18+
- Rík þjónustulund og sterk öryggisvitund
- Stundvísi, reglusemi og snyrtimennska
- Góð samskiptahæfni og eiga gott með að vinna í hóp
- Bílpróf er ekki skilyrði fyrir öllum störfum á hafnarsvæði, en mikill kostur
- Vinnuvélaréttindi J eða K er kostur
- Námskeið fyrir umsækjendur sem eru ekki með J eða K réttindi gæti verið möguleiki
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum til þess að sækja um. Mikilvægt er að sumarstarfsfólk geti unnið samfellt í 10 vikur á tímabilinu maí - ágúst.
Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri og hafa hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars n.k.
Icelandic
English










