Þór hf.
Þór hf.
Þór hf.

Fjármálastjóri

Þór hf. leitar að öflugum og traustum fjármálastjóra í fullt starf til eins árs. Um er að ræða tímabundna stöðu frá og með miðjum september 2026.

Starfið hentar einstaklingi sem hefur góða yfirsýn yfir fjármál og rekstur, vinnur af nákvæmni og sjálfstæði og leggur áherslu á góð samskipti, traust samstarf og vandaða eftirfylgni.

Áhugasömum er bent á að sækja um starfið hér á Alfreð, umsóknarfrestur er til og með 25.ágúst. Tekið er á móti fyrirspurnum á [email protected].

Við hvetjum öll áhugasöm til þess að sækja um starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg fjármálaumsýsla og eftirfylgni með rekstri
  • Umsjón með bókhaldi, greiðslum og greiðsluflæði
  • Gerð mánaðarlegra uppgjöra, rekstrar- og efnahagsuppgjöra
  • Eftirfylgni með viðskiptakröfum, innheimtu og samskiptum við viðskiptavini
  • Samskipti við banka, endurskoðendur, birgja og aðra þjónustuaðila
  • Áætlanagerð, greiningar og skýrslugjöf til stjórnenda
  • Eftirlit með kostnaði og stuðningur við rekstrarlegar ákvarðanir
  • Umsjón með skrifstofu fyrirtækisins og daglegri starfsemi hennar
  • Ábyrgð á skilvirku verklagi, góðri yfirsýn og vandaðri fjármála- og skrifstofuumsýslu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af fjármálum, bókhaldi, uppgjörum og rekstrarlegri eftirfylgni
  • Góð færni í Excel og almennri notkun upplýsingakerfa
  • Reynsla af bókhalds- og/eða fjárhagskerfum
  • Nákvæmni, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Þjónustulund, frumkvæði og góð samskiptahæfni
Advertisement published14. August 2026
Application deadline26. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Krókháls 16, 113 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags