Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar - GJ Travel
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar - GJ Travel
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar - GJ Travel

Ferðaskipuleggjandi

Við leitum að drífandi og skipulögðum einstaklingi í fullt starf hjá Ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonar ehf. í Kópavogi.
Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf í samhentu teymi sem býr yfir mikilli reynslu og þekkingu á skipulagningu ferða innanlands og utan.

Starfið felur í sér sölu, skipulag og framkvæmd ferða ásamt þróun nýrra ferða og verkefna. Við leitum að jákvæðum og lausnarmiðuðum starfsmanni, með brennandi áhuga á ferðaþjónustu og þjónustulund, sem nýtur samskipta í alþjóðlegu umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulagning, sala og framkvæmd hópferða innanlands og erlendis.
  • Samskipti við viðskiptavini, birgja og samstarfsaðila.
  • Þróun og uppfærsla á vörum og ferðaáætlunum.
  • Útreikningar og gerð verðlista og ferðalýsinga.
  • Útgáfa farseðla og annarra ferðagagna.
  • Skráningar og skjölun í innri kerfum.
  • Fylgni við gæði og fagmennsku í allri þjónustu.
  • Fararstjórn og ráðning fararstjóra eftir þörfum.
  • Þátttaka í nýjum verkefnum og daglegri starfsemi fyrirtækisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla úr ferðaþjónustu sem nýtist í starfi.
  • Þekking og reynsla af Amadeus bókunarkerfinu.
  • Góð skipulagshæfni, frumkvæði og ábyrg vinnubrögð.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í rituðu og töluðu máli.
  • Þekking á öðrum tungumálum er kostur.
  • Færni í Excel og almenn tölvukunnátta (Microsoft Office o.fl.).
  • Jákvætt viðmót, þjónustulund og hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi.
Fríðindi í starfi
  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Árlegur íþróttastyrkur
Advertisement published19. December 2025
Application deadline30. January 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Vesturvör 34, 200 Kópavogur
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags