Iceland Encounter
Iceland Encounter

Ferðaráðgjafi

Hefur þú áhuga á að skapa ógleymanlegar upplifanir fyrir vandláta ferðamenn? Iceland Encounter óskar eftir að ráða drífandi og hugmyndaríkan einstakling í starf ferðaráðgjafa.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hönnun og sala á vönduðum ferðum um Ísland þar sem áhersla er lögð á einstakar upplifanir
  • Samskipti við erlendar ferðaskrifstofur og söluaðila sem sérhæfa sig í ferðum fyrir kröfuharða viðskiptavini
  • Samskipti við íslenska birgja og leiðsögumenn og tryggja að þjónusta og upplifun viðskiptavina verði eins og best verður á kosið
  • Tilboðsgerð og undirbúningur ferðagagna ásamt annarri skjalavinnu
  • Þátttaka í öðrum verkefnum sem styðja við framgang fyrirtækisins og íslenskrar ferðaþjónustu


Menntunar- og hæfniskröfur

  • Minnst tveggja ára reynsla af sambærilegu starfi
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
  • Nákvæm vinnubrögð, sjálfstæði, frumkvæði og hugmyndaauðgi
  • Framúrskarandi enskukunnátta í ræðu og riti
  • Mjög góð tölvukunnátta, einkum á Word, Excel og Outlook


Iceland Encounter er leiðandi fyrirtæki sem var stofnað árið 2009 og sérhæfir sig í fágætisferðamennsku. Fyrirtækið býður upp á vandaðar og sérsniðnar ferðir um Ísland fyrir erlenda viðskiptavini.

Umsóknarfrestur er til og með 2. desember 2024. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Þuríður Pétursdóttir (thuridur@intellecta.is) í síma 511-1225.

Advertisement published18. November 2024
Application deadline2. December 2024
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Sundagarðar 2, 104 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags