Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Félagsráðgjafi- Heilsugæslan Hlíðum

Hefur þú áhuga á fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun ?

Heilsugæslan Hlíðum leitar að félagsráðgjafa í nýtt og spennandi starf. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Á heilsugæslustöðinni starfa sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.

Heilsugæslan Hlíðum býður upp á fjölskylduvænt vinnufyrirkomulag og gott starfsumhverfi.

Til greina getur komið að ráða tímabundið áhugasaman reynsluminni félagsráðgjafa í ábyrgðarminna starf fáist ekki félagsráðgjafi með reynslu í starfið.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins).

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í þróun og uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu 
  • Teymisvinna með læknum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, riturum og sálfræðingum 
  • Einstaklingsbundin stuðningsviðtöl og ráðgjöf sem lítur að sálfélagslegum vanda ásamt framfærsluúrræðum, félagslegum úrræðum og réttindamálum 
  • Fjölskylduráðgjöf af ýmsum toga 
  • Samstarf við aðrar stofnanir og þjónustuveitendur s.s. heilbrigðisstofnanir, þjónustumiðstöðvar, starfsendurhæfingu, TR, SÍ o.fl. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi frá embætti landlæknis til að starfa sem félagsráðgjafi
  • Hefur að jafnaði a.m.k. 2 ára starfsreynslu í faggreininni
  • Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu
  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
  • Reynsla og áhugi fyrir þverfaglegri teymisvinnu
  • Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Góð almenn tölvukunnátta
Advertisement published1. October 2026
Application deadline15. October 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Skógarhlíð 18, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags