Borgarholtsskóli
Borgarholtsskóli

Félags- og samfélagsmiðlafulltrúi Borgarholtsskóla

Borgarholtsskóli óskar eftir að ráða félags- og samfélagsmiðlafulltrúa í 50% starf næsta skólaár.

Við leitum að öflugum og hugmyndaríkum einstaklingi sem hefur áhuga á að efla félagslíf nemenda, styðja við vellíðan þeirra og halda utan um sýnileika skólans á samfélagsmiðlum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stuðla að virku, fjölbreyttu og jákvæðu félagslífi nemenda.
  • Vinna náið með stjórn nemendafélagsins og nefndum þess að skipulagi og framkvæmd viðburða.
  • Hvetja nemendur til þátttöku í félagsstarfi og efla samfélagsanda innan skólans.
  • Styðja við að félagslíf skólans stuðli að vellíðan og virkri þátttöku nemenda.
  • Annast umsjón með samfélagsmiðlum skólans.
  • Taka þátt í ráðgjöf, stefnumótun og áætlanagerð í markaðssetningu á netinu.
  • Skapa efni fyrir samfélagsmiðla skólans og miðla efni frá starfsemi allra deilda skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði tómstunda-, félags- eða uppeldisfræða.
  • Menntun og/eða reynsla af markaðssetningu á netinu og samfélagsmiðlum.
  • Hugmyndaauðgi, frumkvæði og gott auga fyrir efnissköpun og textasmíð.
  • Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna með ungu fólki.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni..
Advertisement published16. June 2026
Application deadline26. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Mosavegur 1A, 112 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags