Faxaflóahafnir sf.
Faxaflóahafnir sf.

Faxaflóahafnir sf. leita að löggiltum rafverktaka.

Faxaflóahafnir sf. leita að metnaðarfullum einstaklingi í starf rafverktaka hjá sviði hafnarinnviða.

Helstu verkefni
Annast dagleg samskipti við notendur rafmagnskerfa og rafmagnsdreifikerfa í eigu Faxflóahafna.
Hafa umsjón og annast uppsetningu, viðhald og viðgerðir á rafmagnstækjum og rafmagnstengdum kerfum
og búnaði í eigu Faxaflóahafna.
Kemur að hönnun raflagnakerfa á búnaði Faxaflóahafna í samvinnu við framkvæmda- og innviðasvið.
Eftirlit og samskipti við verktaka.
Annast önnur þau störf, sem viðkomandi kunna að vera falin af yfirmanni og falla innan eðlilegs starfsviðs hans.

Menntunar- og hæfniskröfur
Löggiltur rafverktaki.
Færni í samskiptum við fólk og fyrirtæki.
Reynsla af verkstjórnun.
Góð almenn tölvukunnátta.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Faxaflóahafnir er stærsta höfn landsins þar sem starfa um 80 manns á
starfsstöðvum fyrirtækisins í Reykjavík, á Akranesi, Grundartanga og í Borgarnesi.
Við viljum vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum en leggjum einnig áherslu
á þróun snjallra lausna og grænar hafnir.
Við leitum að einstaklingi með góða hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði
og sjálfstæði í starfi.

Starfsmaðurinn mun hafa aðstöðu á viðhaldsverkstæði Faxaflóahafna sem er við Fiskislóð 12 í Reykjavík.
Nánari upplýsingar um störfin gefur J. Snæfríður Einarsdóttir, sviðsstjóri hafnarinnviða; [email protected]
Umsókn, ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna á netfangið [email protected], eigi síðar en sunnudaginn 1. mars n.k.

Advertisement published23. February 2026
Application deadline1. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Fiskislóð 12, 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags