

Viltu taka þátt í að móta einstakan skóla?
Þorláksskóli leitar að þroskaþjálfa, iðjuþjálfa eða einstaklingi með aðra viðeigandi menntun og reynslu af starfi með fötluðum börnum. Um er að ræða 100% starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Þorláksskóli er nýr sjálfstætt starfandi grunnskóli í Garðabæ fyrir einhverf börn. Skólinn er lítill og persónulegur og þar er lögð áhersla á öryggi, tengslamyndun, einstaklingsmiðað nám, skýra umgjörð og virðingu fyrir þörfum hvers barns.
Helstu verkefni
- Bein vinna með nemendum
- Þátttaka í kennslu, undirbúningi og skipulagningu skólastarfs
- Aðlögun náms, verkefna og umhverfis að þörfum hvers barns
- Stuðningur við tjáskipti, sjálfstæði, líðan og þátttöku nemenda
- Samstarf við fjölskyldur, samstarfsfólk og aðra fagaðila
- Virk þátttaka í áframhaldandi þróun og mótun skólastarfsins
Við leitum að einstaklingi sem
- Er þroskaþjálfi, iðjuþjálfi eða hefur aðra menntun sem nýtist í starfinu
- Hefur reynslu af starfi með fötluðum einstaklingum, helst einhverfum börnum
- Er hlýr, yfirvegaður og lausnamiðaður
- Sýnir frumkvæði og á auðvelt með að vinna í teymi
- Hefur áhuga á einstaklingsmiðuðu og skapandi skólastarfi
- Mætir börnum af virðingu, þolinmæði og einlægum áhuga
Við bjóðum einstakt tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu nýs skóla og vinna með öflugum og metnaðarfullum starfsmannahópi. Starfið býður upp á raunverulegt svigrúm til að hafa áhrif og þróa skólastarf sem tekur mið af styrkleikum og þörfum hvers barns.
Um er að ræða 100% dagvinnustarf. Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og stutt kynningarbréf. Umsóknir verða teknar til skoðunar jafnóðum og ráðið verður í starfið þegar rétti einstaklingurinn finnst.
Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum Alfreð.
Nánari upplýsingar veitir Vigdís Gunnarsdóttir í netfanginu [email protected].
Icelandic










