Sunnulækjarskóli, Selfossi
Sunnulækjarskóli, Selfossi
Sunnulækjarskóli, Selfossi

Fagaðili í Sérdeild Sunnulækjarskóla

Auglýst er 100% staða fagaðila í Sérdeild Sunnulækjarskóla frá 1. ágúst 2026

Sérdeild Sunnulækjarskóla, Setrið, auglýsir eftir drífandi og kraftmiklum fagaðila í fullt starf frá 1. ágúst. Fagaðili veitir leiðsögn og ráðgjöf til foreldra/forráðamanna og starfsfólks og vinnur markvisst að því að efla sjálfstæði, þátttöku og færni nemenda námslega, félagslega og í athöfnum daglegs lífs.  

Setrið er deild í Sunnulækjarskóla þar sem rúmlega 30 börn stunda nám. Deildin veitir nemendum með sérþarfir fjölbreytt nám sem tekur mið af þörfum þeirra og stöðu. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðað nám og að skapa umhverfi þar sem hver nemandi fær tækifæri til að efla hæfileika sína, styrkleika, sköpunargáfu og persónulega getu á sínum forsendum. Jafnframt er stuðlað að virkri þátttöku í skólasamfélaginu þar sem hver og einn fær tækifæri til að taka þátt á eigin forsendum, með styrkleika sína að leiðarljósi.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfar í nánu samstarfi við starfsfólk, foreldra/forráðamenn og deildarstjóra. 

  • Ber ábyrgð á öryggi, velferð og farsæld nemenda í daglegu starfi. 

  • Sinnir kennslu og þjálfun sem tekur mið af þörfum og styrkleikum nemenda.  

  • Skipuleggur kennslu, útbýr námsgögn og fylgir eftir markmiðum og áætlunum. 

  • Tekur þátt í gerð einstaklingsnámsskráa, mati og áætlanagerð í samstarfi við starfsfólk og foreldra/forráðamenn. 

  • Veitir faglega ráðgjöf og tekur þátt í þverfaglegu samstarfi.  

  • Stuðlar að jákvæðu, öruggu og uppbyggilegu námsumhverfi. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gerð er krafa um háskólamenntun á sviði skólamála svo sem í þroskaþjálfafræði, atferlisfræði, iðjuþjálfun, kennslufræði eða uppeldis- og menntunarfræði, eða aðra sambærilega menntun sem nýtist í starfi. 

  • Áhugi á skólastarfi og reynsla af starfi með börnum. 

  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð. 

  • Jákvætt viðhorf, sveigjanleiki og lausnamiðuð hugsun. 

  • Þekking á skipulagðri kennslu samkvæmt TEACCH er kostur. 

  • Reynsla af teymisvinnu æskileg. 

  • Færni í mannlegum samskiptum og samstarfshæfni. 

  • Faglegur metnaður og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi. 

  • Góð færni í íslensku, bæði í ræðu og riti. 

Advertisement published27. May 2026
Application deadline8. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Norðurhólar 1, 800 Selfoss
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags