The House of Beauty
The House of Beauty
The House of Beauty

Leitum af öflugum heilsuráðgjafa

Heilsuráðgjafi óskast

Viltu vinna starf þar sem þú getur haft raunveruleg áhrif á heilsu, líðan og lífsgæði fólks?

The House of Beauty er margverðlaunuð heilsu- og líkamsklíník sem hefur sérhæft sig í heilsueflandi meðferðum, verkjastjórnun, sogæðameðferðum, líkamsmótun og húðþéttingu án inngripa.

Við leitum að heilsuráðgjafa sem hefur áhuga á heilsu, mannlegri líðan og því að hjálpa fólki að finna leiðir til betri heilsu og aukinna lífsgæða.

Um starfið

Viðkomandi mun taka á móti einstaklingum sem leita sér aðstoðar vegna margvíslegra áskorana, svo sem verkja, bólga, bjúgs, orkuleysis, vefjagigtar, lífsstílstengdra vandamála eða líkamlegra þátta sem hafa áhrif á sjálfstraust og líðan.

Heilsuráðgjafinn greinir þarfir viðskiptavina, veitir faglega fræðslu og ráðgjöf og leiðbeinir hverjum einstaklingi að þeirri lausn sem hentar best út frá aðstæðum, markmiðum og heilsufari.

Um er að ræða gefandi starf fyrir einstakling sem hefur áhuga á heilsu, vellíðan og mannlegum samskiptum og vill hafa raunveruleg áhrif á líf fólks á hverjum degi.

Heilbrigðismenntun eða reynsla af heilsutengdum störfum er kostur.

Við leitum að hlýjum einstaklingi sem:

• Hefur framúrskarandi samskiptahæfileika.

• Á auðvelt með að skapa traust og byggja upp góð tengsl.

• Hefur brennandi áhuga á heilsu, vellíðan og lífsstílsbreytingum.

• Er jákvæður, lausnamiðaður og þjónustulundaður.

• Er skipulagður, sjálfstæður og ábyrgur.

• Nýtur þess að vinna með fólki og hjálpa því að ná markmiðum sínum.

• Hefur framúrskarandi íslensku- og enskukunnáttu í töluðu og rituðu máli.

Starfskjör

• Um verktakastarf er að ræða með föstum kjörum ásamt árangurstengingu.

• Starfið er hlutastarf í upphafi með möguleika á auknu starfshlutfalli eftir því sem starfið þróast.

• Vinnutími er sveigjanlegur og samkomulagsatriði.

• Frábært tækifæri fyrir einstakling sem vill vaxa með fyrirtækinu til framtíðar.

Ekki er gerð krafa um að umsækjendur þekki meðferðir okkar eða greiningu á heilsufari fyrirfram.

Réttur einstaklingur fær ítarlega þjálfun, fræðslu og handleiðslu til að geta sinnt starfinu af öryggi, fagmennsku og sjálfstrausti.

Starfið getur hentað hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum, heilsumarkþjálfum, íþróttafræðingum, einkaþjálfurum sem og öðrum sem hafa áhuga á að vinna með fólki að bættri heilsu og vellíðan.

Ef þetta vekur áhuga þinn viljum við gjarnan heyra frá þér.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni:

• Taka á móti nýjum og núverandi viðskiptavinum í ráðgjöf.

• Fara yfir heilsufar, markmið, þarfir og væntingar viðskiptavina.

• Veita fræðslu um heilsu, vellíðan, meðferðir og mögulegar lausnir.

• Veita faglega, heiðarlega og einstaklingsmiðaða ráðgjöf.

• Útbúa tillögur að meðferðar- og heilsuáætlunum.

• Styðja og leiðbeina viðskiptavinum í átt að markmiðum sínum.

• Fylgja viðskiptavinum eftir og veita stuðning á vegferð þeirra.

• Kynna þjónustu og meðferðir klíníkarinnar á faglegan og traustan hátt.

• Vinna náið með meðferðaraðilum og öðru starfsfólki.

• Stuðla að framúrskarandi þjónustuupplifun og langtímasambandi við viðskiptavini.

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun og reynsla:

Við leitum fyrst og fremst að einstaklingi með brennandi áhuga á heilsu og vellíðan fólks, framúrskarandi samskiptahæfileika og hæfni til að byggja upp traust sambönd.

Kostur er ef viðkomandi hefur menntun eða reynslu á einhverju af eftirfarandi sviðum:

• Heilsumarkþjálfun eða markþjálfun

• Hjúkrun

• Sjúkraliðun

• Sjúkraþjálfun

• Heilsunuddi

• Annarrar heilbrigðismenntunar

• Íþróttafræði eða íþróttakennslu

• Einkaþjálfunar

• Næringarfræði eða annarra heilsutengdra greina

• Sölu- og/eða ráðgjafastarfa.

Fríðindi í starfi

Við bjóðum:

• Einstakt og fjölbreytt starf í vaxandi fyrirtæki.

• Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á heilsu og lífsgæði fólks.

• Öfluga þjálfun og fræðslu sem gerir þér kleift að sinna starfinu af fagmennsku og öryggi.

• Kennslu á okkar aðferðarfræði, meðferðum, þjónustu og ráðgjafarferlum.

• Tækifæri til að vaxa og þróast í starfi.

• Sterka liðsheild og jákvætt starfsumhverfi.

• Vinnu á einni af leiðandi heilsu- og líkamsklínikum landsins.

Advertisement published4. June 2026
Application deadline21. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Fákafen 9, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.Quick learnerPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Physical fitnessPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.NeatnessPathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags