Egilsstaðaskóli
Egilsstaðaskóli
Egilsstaðaskóli

Deildarstjóri stoðþjónustu

Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum? Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi í Egilsstaðaskóla og þróa það með okkur?

Deildarstjóri stoðþjónustu annast skipulagningu sérkennslu og stoðþjónustu í samráði við stjórnendateymi skólans og er næstu yfirmaður sérkennara, iðju- og þroskaþjálfa og stuðningsfulltrúa. Næsti yfirmaður er skólastjóri Egilsstaðaskóla.

Um er að ræða 100% starf og ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2025.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Er ábyrgur fyrir skipulagningu sérkennslu og stoðþjónustu skólans.
  • Skipuleggur og hefur umsjón með námsaðstoð, stuðnings- og sérkennslu.
  • Annast úrvinnslu og túlkun greiningargagna og beiðna um aukna námsaðstoð og þjónustu við nemendur.
  • Ber ábyrgð á gerð einstaklingsnámskráa í samvinnu við kennara, þroska- og iðjuþjálfa.
  • Aðstoða kennara við gerð einstaklingsmarkmiða í námi.
  • Vinnur með stjórnendateymi skólans við að skipuleggja störf sérkennara, stuðningsfulltrúa og þroska- og iðjuþjálfa.
  • Er tengiliður við umsjónarkennara og foreldra nemenda sem njóta sérstaks námsstuðnings.
  • Annast áætlana- og skýrslugerð vegna sér- og stuðningskennslu.
  • Situr og stýrir nemendaverndarráðsfundum og lausnarteymisfundum.
  • Heldur utan um, skipuleggur og tekur þátt í að leggja fyrir skimanir í samstarfi við Skólaþjónustu Múlaþings.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf grunnskólakennara er skilyrði.
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af sérkennslu æskileg og reynsla af sambærilegu starfi kostur.
  • Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði.
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og umburðarlyndi.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður.
  • Áhugi á starfsþróun og nýjum, fjölbreyttum áherslum í skólastarfi.
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki.
Advertisement published7. March 2025
Application deadline21. March 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Tjarnarlönd 11, 700 Egilsstaðir
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags